Aðstoðarþjálfarar endast stutt í Garðabæ

Hrannar Bogi sagði upp í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Steven Caulker var spilandi aðstoðarþjálfari Stjörnunnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Var aðstoðarþjálfari Stjörnunnar 2024.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hrannar Bogi sagði upp í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hrannar Bogi Jónsson sagði í gær upp störfum sem aðstoðarþjálfari Stjörnunnar. Hann hafði gegnt starfinu frá því í vetur og var fenginn af Jökli Elísabetarsyni sem var látinn taka poka sinn í síðasta mánuði.
Lítil festa hefur verið í aðstoðarþjálfarastöðu Stjörnunnar síðustu ár en nokkrir hafa komið og farið á skömmum tíma.

TENGT EFNI
Hrannar Bogi hættur hjá Stjörnunni (Staðfest)
Steven Caulker var aðstoðarþjálfari liðsins seinni hluta síðasta tímabils. Hann var fenginn til liðs við félagið í lok júní og var spilandi aðstoðarþjálfari eftir að hann fékk leikheimild um miðjan júlí.
Samningi Caulker við Stjörnuna var rift eftir tímabil og sagði Jökull Elísabetarson, þáverandi þjálfari liðsins, fjárhagslegar ástæður fyrir riftuninni.
Þar áður var Björn Berg Bryde aðstoðarþjálfari liðsins og gegndi hann því starfi tímabilið 2024. Fótbolti.net greindi frá því að hann hafi verið látinn fara eftir að hafa pantað sér utanlandsferð í janúar 2025. Óánægja hafi verið innan Stjörnunnar með að hann færi út þegar undirbúningstímabilið væri í gangi.
Þess má geta að Jökull Elísabetarson var aðstoðarþjálfari liðsins með Ágústi Gylfasyni í eitt og hálft ár áður en hann fékk starfið snemma tímabils 2023.
Þá var nýráðinn þjálfari Stjörnunnar, Jón Þór Hauksson, aðstoðarþjálfari liðsins tímabilið 2018 en hætti að tímabilinu loknu til þess að taka við kvennalandsliðinu.