Martin Odegaard er samningsbundinn Real Madrid en hann var á láni hjá Arsenal á síðustu leiktíð.
                
                
                                    Mikel Arteta stjóri Arsenal hefur áhuga á að fá hann aftur til félagsins en það gæti reynst erfitt.
Liverpool og Chelsea hafa blandað sér í baráttuna um að tryggja sér þjónustu hans á komandi tímabili.
Liverpool er í leit að eftirmanni Gini Wijnaldum sem samdi við PSG í sumar.
Athugasemdir
                                                                
                                                        
 
         
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                        
                        
        
         
                    
        
         
                 
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                            
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                
                        
        
        
