Barcelona og Celta Vigo hafa náð samkomulagi um kaup á Oscar Mingueza. Hann á aðeins eftir að standast læknisskoðun hjá Celta.
Hann mun gera fjögurra ára samning við félagið en þessi 23 ára gamli varnarmaður var ekki í framtíðarplönum Xavi hjá Barcelona. Kaupverðið er talið vera 3 milljónir evra.
Hann var í stóru hlutverki undir stjórn Ronald Koeman en það minnkaði með komu Xavi.
Hann kom við sögu í 66 leikjum á tveimur árum með aðalliði félagsins.
Athugasemdir