Fotbolti.net
31.08.17 - 23:15
Lilja Dögg Valþórsdóttir

Óli: Er ánægður með allan hópinn okkar

Auglýsing
Óli var ánægður með tempóið hjá sínu liði

Óli var ánægður með tempóið hjá sínu liði

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
<i>“Já, ég er mjög sáttur. Þær spiluðu vel og voru með ótrúlega gott tempó miðað við langa ferðalagið okkar og leikina út. Þetta var svona framhald af því sem við vorum að spila úti þannig að ég er mjög ánægður”,</i> sagði Ólafur Guðbjörnsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir sigurinn á FH í kvöld.
Það er búið að vera nóg að gera hjá liði Stjörnunnar undanfarið þar sem þær eru nýkomnar heim frá Króatíu þar sem þær spiluðu 3 leiki í Meistaradeild kvenna. En við veltum fyrir okkur hversu erfiðir þessir leikir hafa verið í ljósi þess að tveir fyrstu unnust með 9 mörkum og 11 mörkum. Þann síðasta vann Stjarnan 1-0.

“Fyrstu tveir leikirnir voru náttúrulega ekki erfiðir. Það sem var erfitt í þessu var hitinn. Við vorum að spila í 34 stiga hita, tveir dagar á milli og æfa. Það var það erfiða í þessu, þeir voru ekkert mjög erfiðir leikirnir. En þú þarft að keyra þetta í 90 mínútur og þarft að halda uppi tempóinu til að skora öll þessi mörk. Við þurftum að hafa fyrir því. Og svo var síðasti leikurinn hörkuleikur.”

“Ég er ánægður með hvernig þær spiluðu í dag og hvernig leikmenn komu inní þetta sem komu inná og komu inní liðið. Þannig að ég er mjög ánægður með hópinn okkar.”

Nú eru einungis 3 leikir eftir í deildinni og Stjarnan á eftir að spila við 2 efstu lið deildarinnar og síðast það næstneðsta. Hvernig sér Óli fyrir sér lokasprettinn í deildinni?

“Ég sé þetta sem þrjá hörkuleiki. Auðvitað erum við komin vel á eftir þeim og titillinn er farinn úr höndum okkar en við höfum alveg sama metnað að klára leikina okkar. Við sjáum það á tempóinu á leikmönnum í dag. Ég lít á þetta sem þrjá frábæra leiki og mjög gott fyrir liðið okkar með áframhaldandi þróun á því. Það er engin stefna að gefa eftir í þeim.”

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, valdi í fyrradag hópinn sem mætir Færeyjum í fyrsta leik landsliðsins í undankeppni HM í Frakklandi 2019. Athygli vakti að Harpa Þorsteinsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, var ekki valin í hópinn þrátt fyrir að hafa náð að koma sér í hópinn fyrir EM stuttu eftir barnsburð. Hefur Óli einhverja skoðun á valinu?

“Allir þjálfarar vilja náttúrulega hafa sem flesta leikmenn í liðinu. Ég hef enga hugmynd um hvað var á bakvið þetta enda hef ég ekkert heyrt í landsliðsþjálfaranum með það. En hann segist hafa talað við leikmanninn. En mér finnst þetta svolítið skrítið að hafa tekið hana út í ákveðnu hlutverki, eins og þeir sögðu, og spilaði í byrjunarliði í síðasta leik. En ég virði bara hans skoðanir. Hann velur þetta og það er hver þjálfari með sínar skoðanir.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.