Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 31. ágúst 2021 18:01
Victor Pálsson
Bauluðu grimmt á Umtiti - Neitar að fara annað
Mynd: Getty Images
Barcelona vill mikið losna við varnarmanninn Samuel Umtiti í sumar en hann er ekki inni í myndinni hjá félaginu.

Stuðningsmenn Barcelona eru komnir með nóg af leikmanninum sem hefur hingað til neitað að fara annað.

Frakkinn fær um 200 þúsund pund í vikulaun á Nou Camp og myndi Barcelona íhuga það að hleypa honum annað frítt.

Umtiti fékk að hita upp í síðasta leiknum gegn Getafe en Ronald Koeman notaði hann þó ekkert í viðureigninni.

Stuðningsmenn Barcelona bauluðu grimmt á Umtiti er hann hitaði upp á hliðarlínunni og ýta undir það að hann eigi að koma sér burt.

Einhver félög hafa sýnt Umtiti áhuga en hann hefur lítinn áhuga á að labba frá launatékkanum á Spáni.


Athugasemdir
banner
banner