Fotbolti.net
31.08.26 - 23:50
Ívan Guðjón Baldursson

Arteta: Erum að reyna að styrkja hópinn

Arteta: Erum að reyna að styrkja hópinn
Canon

Mynd: EPA

Mikel Arteta var ánægður eftir lokaflautið á Villa Park þegar Arsenal heimsótti Aston Villa fyrr í kvöld.
England: Saka gerði sigurmarkið á Villa Park
TENGT EFNI

England: Saka gerði sigurmarkið á Villa Park

Leikurinn var bragðdaufur og einkenndist af mikilli baráttu og miðjumoði en Arsenal var hættulegra liðið og skoraði Bukayo Saka eina mark leiksins á 59. mínútu.

„Ég er mjög ánægður að ná í þrjú stig á þessum erfiða útivelli. Mér fannst við eiga skilið að sigra, við spiluðum mjög góðan leik gegn verulega sterkum andstæðingum. Við gáfum ekki færi á okkur. Við töpuðum á þessum velli á leiðinlegan hátt á síðustu leiktíð og það sat enn í maganum," sagði Arteta, sem var ánægður með innkomur Eberechi Eze og Ezri Konsa af bekknum.

„Ebs skapaði færið sem vann leikinn og Ezri var mjög yfirvegaður í öllum ákvörðunum sem hann tók. Ég er mjög ánægður með þá og gæðin sem við erum með á bekknum, þau gætu ráðið úrslitum þegar líður á leiktíðina. Ég er fyrst og fremst ánægður með stigin, þetta er svo erfið deild að hvert einasta stig skiptir máli."

Félagaskiptaglugginn lokar annað kvöld og gæti Arsenal ennþá bætt einhverjum leikmanni við hópinn.

„Við erum alltaf að reyna að bæta leikmannahópinn og munum halda áfram að gera það þar til félagaskiptaglugginn lokar annað kvöld. Það er mjög mikilvægt fyrir okkur að vera með góða breidd í hópnum útaf því að markmiðið á hverju tímabili er að vinna fjórar keppnir."

Einkunnir Villa og Arsenal: Tzolis fjarkaður
TENGT EFNI

Einkunnir Villa og Arsenal: Tzolis fjarkaður

Arteta: Erum að reyna að styrkja hópinn
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.