Fotbolti.net
31.08.26 - 14:41
Elvar Geir Magnússon

Eiður birtist ekki á skýrslunni vegna galla í kerfi KSÍ

Eiður birtist ekki á skýrslunni vegna galla í kerfi KSÍ
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Athygli vakti að Eiður Smári Guðjohnsen var ekki skráður á skýrsluna sem var gerð opinber fyrir leik KA og Fram í Bestu deildinni í gær.

Þegar klukkutími var í leik var skýrslan birt á vefsíðu KSÍ eins og venja er. Einhverra hluta vegna komu nöfn allra fram á skýrslunni nema nafn Eiðs Smára.

Eiður Smári kom inn í þjálfarateymi KA nýlega og var að stýra sínum öðrum leik hjá liðinu, við hlið Hallgríms Jónassonar.
Lestu um leikinn: Fram 2 - 2 KA
KA skilaði öllu inn á réttum tíma en einhver kerfisvilla í nýju kerfi KSÍ gerði það að verkum að Eiður var ekki skráður. Ný vefsíða KSÍ hefur hlotið mikla gagnrýni og greinilegt að enn er eitthvað í að laga alla þá galla sem eru í kerfinu.

Eiður stýrði KA svo sannarlega í leiknum, hann endaði með 2-2 jafntefli og hér má sjá viðtal við Eið eftir leikinn:

Eiður Smári: Held ég sé bara fínasta viðbót
TENGT EFNI

Eiður Smári: Held ég sé bara fínasta viðbót

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.