Fotbolti.net
31.08.26 - 17:24
Ívan Guðjón Baldursson

Fer fyrst til Palace og svo til Chelsea

Fer fyrst til Palace og svo til Chelsea
Canon

Mynd: EPA

Varnarmaðurinn efnilegi Honest Ahanor er á leið í ensku úrvalsdeildina. Chelsea er að kaupa hann fyrir um 40 milljónir punda.
Chelsea kaupir einn heiðarlegan á 40 milljónir punda
TENGT EFNI

Chelsea kaupir einn heiðarlegan á 40 milljónir punda

Ahanor er aðeins 18 ára gamall og var talið að Chelsea myndi lána hann til systurfélagsins Strasbourg, en svo virðist ekki vera.

Crystal Palace hefur áhuga á miðverðinum og vill fá hann á lánssamningi, en Chelsea má ekki lána annan leikmann til Palace eftir að hafa sent Axel Disasi þangað fyrr í ágúst.

Atalanta hefur því samþykkt að lána Ahanor til Palace út keppnistímabilið og mun Chelsea svo festa kaup á honum næsta sumar þegar táningurinn hefur öðlast reynslu úr úrvalsdeildinni.

Ahanor kom við sögu í 35 leikjum á síðustu leiktíð og er með tvo A-landsleiki að baki fyrir Ítalíu.
Fer fyrst til Palace og svo til Chelsea
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.