31.08.26 - 16:12
Elvar Geir Magnússon
Gakpo fer ekki frá Liverpool

Gakpo skoraði gegn Newcastle.

Mynd: EPA

Gakpo skoraði gegn Newcastle.

Mynd: EPA
Samkvæmt Athletic er allt útlit fyrir að Cody Gakpo verði áfram hjá Liverpool eftir að félagið hafnaði 80 milljóna punda tilboði Manchester City í hollenska landsliðsmanninn.
Gakpo hefur verið sterklega orðaður við Manchester City sem hefur verið í viðræðum við Liverpool um leikmanninn.
Gakpo hefur verið sterklega orðaður við Manchester City sem hefur verið í viðræðum við Liverpool um leikmanninn.

TENGT EFNI
Bradley Barcola til Liverpool (Staðfest)
Gakpo byrjaði tvo fyrstu leiki Liverpool í ensku úrvalsdeildinni, skoraði í 2-2 jafnteflinu við Newcastle United og lagði upp í 2-2 jafnteflinu við Nottingham Forest á laugardaginn.
Blaðamaðurinn David Ornstein segir að City sé nú hætt að eltast við Gakpo og ætli að eyða allri orku í að reyna að landa Enzo Fernandez frá Chelsea fyrir gluggalok.
Blaðamaðurinn David Ornstein segir að City sé nú hætt að eltast við Gakpo og ætli að eyða allri orku í að reyna að landa Enzo Fernandez frá Chelsea fyrir gluggalok.
???? BREAKING: Cody Gakpo to stay at Liverpool. Manchester City had £75m + £5m bid rejected by #LFC & pursuit over - confirmed between all sides in direct communication. #MCFC now fully focused on attempting to sign Enzo Fernandez from Chelsea @TheAthleticFC https://t.co/r47xBCrALk
— David Ornstein (@David_Ornstein) August 31, 2026
