Fotbolti.net
31.08.26 - 14:31
Elvar Geir Magnússon
Ítalski boltinn

Hnökrar í viðræðum og óvíst hvort Albert fari til Lazio

Hnökrar í viðræðum og óvíst hvort Albert fari til Lazio
Canon

Mynd: EPA

Lazio reynir að fá Albert Guðmundsson frá Fiorentina en ítalskir fjölmiðlar segja að hnökrar hafi komið upp í viðræðunum. Möguleg skipti séu ekki úr myndinni en svo gæti þó orðið raunin.

Um helgina bárust fréttir af mögulegum kaupum Lazio á íslenska landsliðsmanninum, hann færi fyrst á láni en Lazio gæti svo keypt hann fyrir um 15 milljónir.
Albert færist nær Lazio - Gnonto fer til Fiorentina
TENGT EFNI

Albert færist nær Lazio - Gnonto fer til Fiorentina

Nú er sagt að Lazio sé að skoða aðra kosti í stöðunni fari svo að félaginu takist ekki að landa Alberti.

Albert er 29 ára og hefur verið í ítalska boltanum síðan 2022, fyrst hjá Genoa áður en hann hélt til Flórens.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.