Fotbolti.net
31.08.26 - 19:46
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Jonathan David fer til Atlético

Jonathan David fer til Atlético
Canon

Mynd: EPA

Kanadíski framherjinn Jonathan David er á leið til Atlético Madrid á lánssamningi frá Juventus.
Atletico gerir tilboð í David - Juve að fá Sarr
TENGT EFNI

Atletico gerir tilboð í David - Juve að fá Sarr

Atlético borgar rúmlega helming launa framherjans og fylgir 25 milljón evra kaupmöguleiki með lánssamningnum.

David er á afar háum launum eftir að ítalska stórveldið krækti í hann á frjálsri sölu úr röðum Lille í fyrrasumar. David er 26 ára gamall og með fjögur ár eftir af samningi. Honum tókst að skora 8 mörk og gefa 5 stoðsendingar í 46 leikjum á sínu fyrsta tímabili með Juve.

Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn á félagaskiptin.

Juve náði samkomulagi við Tottenham
TENGT EFNI

Juve náði samkomulagi við Tottenham

Jonathan David fer til Atlético
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.