31.08.26 - 20:34
Ívan Guðjón Baldursson
Sunderland kaupir Danso - Spurs þarf Tosin

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Enskir fjölmiðlar greina frá því að Sunderland sé búið að semja við Tottenham um kaupverð fyrir miðvörðinn Kevin Danso.
Danso er 27 ára gamall og kostaði rúmlega 21 milljón punda þegar Tottenham festi kaup á honum í fyrrasumar. Roberto De Zerbi þjálfari er opinn fyrir að leyfa honum að fara og er Tosin Adarabioyo, miðvörður Chelsea, líklegur til að taka við hlutverki Danso í hópnum.
Tottenham þarf að ganga frá samkomulagi við Chelsea um Tosin áður en félagið getur leyft Danso að fara.
Danso á 36 leiki að baki fyrir Austurríki og tók þátt í 36 leikjum með Tottenham á síðustu leiktíð. Hann spilaði aðeins 24 leiki í ensku úrvalsdeildinni.

TENGT EFNI