Fotbolti.net
31.10.23 - 22:32
Sverrir Örn Einarsson

Ingibjörg: Virðist vera að þetta leikkerfi henti okkur aðeins betur

Auglýsing
Ingibjörg Sigurðardóttir

Ingibjörg Sigurðardóttir

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Netgíró
„Það er margt sem við getum tekið jákvætt út úr þessum leik og mikið af bætingum og frammistöðum síðan í síðasta leik.“
Sagði Ingibjörg Sigurðardóttir um leikinn eftir 2-0 tap Íslands gegn Þýskalandi á Laugardalsvelli í kvöld. Liði sýndi þar þrátt fyrir tap mun betri frammistöðu en þegar liðin mættust í Þýskalandi fyrir um mánuði síðan.
Liðið varðist á köflum vel og átt sína sénsa sóknarlega og fékk færi til þess að jafna leikinn gegn gríðarsterku liði Þjóðverja. Hvar lá bætingin helst að mati Ingibjargar?

„Það virðist vera að þetta leikkerfi henti okkur aðeins betur og við fáum fleiri leikmenn ofar á völlinn til þess að halda í boltann og fleiri möguleika fram á við til að spila boltanum upp. “

Ingibjörg þurfti að gera sér að góðu að sitja upp í stúku í fyrri leik þessa landsleikjaglugga þegar liðið mætti Dönum. Hvernig var tilfinningin að þurfa að fylgjast með liðinu þá úr stúkunni?

„Hún var ekkert svakalega góð. Við vorum mjög góðar í fyrri hálfleik og þá leið mér ágætlega en en þar fannst mér við líka eigið skilið meira úr þeim leik.“

Íslenska liðið er enn ekki tryggt með þriðja sæti riðilsins sem færir liðið í umspil um sætið í A-deild en fjórða sæti fellur svo beint. Framundan eru leikir gegn Danmörku og Wales í desember og væntanlega markmiðið að sækja þau stig sem þarf til að tryggja þetta þriðja sæti.

„Hundrað prósent. Miðað við frammistöðuna í dag og líka gegn Danmörku þá sækjum við tvo sigra í næsta verkefni. Við viljum ná þessu þriðja sæti og gott betur en það.“

Sagði Ingibjörg en allt viðtalið við hana má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.