Fotbolti.net
31.10.26 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson

Carragher: Þetta var bara smá grín

Carragher: Þetta var bara smá grín
Canon

Mynd: Twitter

Fótboltasérfræðingurinn Jamie Carragher á yfir höfði sér lögsókn frá Aston Villa eftir að hann talaði um félagið í hlaðvarpsþætti á dögunum.
Aston Villa ætlar að lögsækja Carragher
TENGT EFNI

Aston Villa ætlar að lögsækja Carragher

Carragher talaði um að Aston Villa yrði aldrei jafn stórt félag og Manchester United og ögraði stuðningsmönnum félagsins með að segja þeim að grjóthalda kjafti.

Carragher uppskar mikil viðbrögð á samfélagsmiðlum og tjáði sig um viðbrögðin, en hann á eftir að tjá sig um yfirlýsinguna sem Aston Villa gaf frá sér í gærkvöldi.

„Þetta var bara smá grín eftir alla gagnrýnina sem ég fékk frá stuðningsmönnum Villa þegar ég sagði að Emery gæti verið að fara til Man Utd. Ég hef hrósað ykkur mikið á síðustu árum og ég var svo ánægður þegar þið unnuð Evrópudeildina í Istanbúl," skrifaði Carragher á Twitter í fyrradag og lét fylgja klippur af sér hrósa Aston Villa og Unai Emery í beinum útsendingum.

„Að mínu mati er Unai Emery besti þjálfari deildarinnar og hann gæti verið á lista hjá stjórnendum Man Utd. Ég er ekki að segja að hann muni skipta um félag, ég er bara að segja að það gæti gerst," sagði Carragher svo í öðrum hlaðvarpsþætti.

„Það er búið að gera alltof mikið úr þessu máli. Ég átti kannski ekki að segja stuðningsmönnum að grjóthalda kjafti en það var bara gert í gríni út af stanslausum ummælum og skilaboðum frá stuðningsmönnum Aston Villa sem ég fékk á samfélagsmiðlum."


Carragher: Þetta var bara smá grín
Canon

Mynd: EPA

Carragher: Þetta var bara smá grín
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.