Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   mið 04. apríl 2018 23:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Gerrard: Þeir fóru yfir strikið
Mynd: Getty Images
Eins og kom fram fyrr í kvöld þá voru mikil læti fyrir utan Anfield fyrir leik Liverpool og Man City þar sem liðsrúta Man City varð fyrir skemmdum.

Steven Gerrard fyrrum fyrirliði Liverpool sagði á BT Sport í kvöld að stuðningsmenn Liverpool hafi þarna farið yfir strikið.

„Það er engin þörf fyrir þetta. Svona setur svartan blett á kvöldið hjá okkur. Þetta er eitthvað sem félagið vill ekki vera þekkt fyrir," sagði Gerrard um hegðun stuðningsmanna fyrir leik.

„Við viljum hafa magnað andrúmsloft á Anfield sem lætur andstæðinginn óttast að koma og spila á vellinum en að gera það sem þessir einstaklingar gerðu í dag er algjörlega út úr korti, þeir fóru yfir strikið."
Athugasemdir
banner
banner