Karim Benzema hefur ekki átt sjö dagana sæla í Sádi-Arabíu en honum hefur ekki tekist að skora fyrir Al Ittihad síðan í desember mánuði.
Frakkinn er goðsögn hjá Real Madrid þar sem hann skoraði eins og óður maður en hann var spurður út í það hvað orsakar þessa markaþurrð í Sádi-Arabíu.
„Ég er ekki sami Benzema og ég var hjá Real Madrid því þetta er allt annar leikur," sagði hann.
„Þetta eru ekki sömu leikmenn, ég þarf hjálp á vellinum. Ég þarf marga hluti. Ég get ekki unnið leikina einn míns liðs."
„Við sjáum til hvað gerist í framtíðinni, það eru mikið að fréttum í gangi. Við sjáum til," sagði Benzema þegar hann var spurður út í framtíð sína hjá Al Ittihad.
Athugasemdir