Bayern reynir aftur við Walker - Neves til Man Utd?
„Þetta er eiginlega nýtt sport sem maður þarf að venjast“
Brjálaður út í dómgæsluna - „Algjörlega úr takt við leikinn“
Benedikt Warén: Verðum að gera þetta að heimavellinum okkar
Heimir Guðjóns um átökin: Verður að vera klár í baráttu
Ómar Ingi: Eitthvað sem er ekki hægt að bjóða uppá
Davíð Smári: Algjör iðnaðarsigur - Við erum ein heild
Leist langbest á Fylki: Erfið ákvörðun en ég stend með henni
Gunnar Magnús: Vikan á heimilinu verður eitthvað sérstök
Jóhann Kristinn: Ómetanlegt að hafa markaskorara eins og Söndru
Guðni Eiríks: Þetta var ekki 4-0 leikur
Eva Rut: Skítamark úr horni
Sigurborg Katla: Hamingja í vatninu
Nik: Telma vann leikinn fyrir okkur
Áslaug Munda sneri óvænt til baka - „Mjög ánægð með að vera komin heim"
Bryndís Rut: Partur af fjölskyldunni þó hún sé núna í öðru liði
Fyrirliði Stjörnunnar um umdeilda atvikið: Þetta er nánast bara 'one in a million'
Stjáni Guðmunds sáttur eftir sigur: Þetta var stórfurðulegur leikur
Óli Kristjáns: Ég vil frekar spila svona og taka ákveðnar áhættur
Pétur: Hef ekki hugmynd hvenær hún spilar
Glenn ósáttur með samskiptin við dómara - „Finnst það ósanngjarnt“
banner
   fim 21. mars 2024 23:29
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Daníel Leó: Erfitt að reyna að halda sjálfstrausti
Icelandair
Daníel Leó Grétarsson.
Daníel Leó Grétarsson.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
„Það er gott að vinna svona leik," sagði varnarmaðurinn Daníel Leó Grétarsson eftir 4-1 sigur Íslands gegn Ísrael í kvöld.

Strákarnir okkar munu á þriðjudaginn spila úrslitaleik við Úkraínu um sæti á Evrópumótinu eftir þennan frábæra sigur í kvöld.

Lestu um leikinn: Ísrael 1 -  4 Ísland

Daníel byrjaði óvænt og hann strögglaði í leiknum. Hann gaf víti í fyrri hálfleiknum og Ísrael komst yfir. „Það var hátt spennustigið komandi inn í þennan leik þar sem þetta hefur verið löng bið."

„Þetta víti, það er svolítið erfitt að komast þannig inn í leikinn. Það var erfitt að reyna að halda sjálfstrausti og að reyna að gera sitt. Það er geggjað að vera með menn í liði sem geta skorað og komið okkur aftur inn í leikinn. Að fara inn í hálfleikinn 2-1 var geggjað."

„Vanalega er styrkleikinn minn að vera góður á boltanum en mér fannst ég ekki sýna það í dag. Við fengum sigurinn og það er það sem skiptir máli."

Hann segir að það hafi verið mikill léttir fyrir sig að liðið hafi náð að snúa leiknum við fyrir leikhlé.

„Að sjálfsögðu. Þegar þú gefur víti, þá finnst þér þú skulda samherjunum. Þegar þú kemst 2-1 fyrir hálfleik er það léttir og gefur þér orku," sagði Daníel. „Við förum á minn gamla heimavöll í næsta leik og mér líst vel á það."

Er hann klár í næsta leik?

„Ég er alltaf klár. Ég er búinn að vera í atvinnumennsku í tíu ár og maður á ekki alltaf frábæra leiki, en þegar maður dettur á sigurleik þá á maður ekki að hengja haus of mikið."
Athugasemdir
banner
banner