Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   þri 26. desember 2017 23:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Eddie Howe: Við áttum þetta mark skilið
Mynd: Getty Images
Eddie Howe stjóri Bournemouth mætti nokkuð sáttur í viðtal eftir leik þeirra við West Ham í dag.

West Ham náði að komast í 2-3 undir lok venjulegs leiktíma en Callum Wilson tókst að bjarga stigi með marki í uppbótartíma sem þótti umdeilt, en markið stóð.

„Ég er mjög ánægður með það hvernig við spiluðum í dag, við fengum mörg tækifæri í dag og ég held að ef allt hefði gengið upp hefðum við getað skorað fimm eða jafnvel sex mörk."

Howe var spurður út í jöfnunarmark Bournemouth, hann sagðist ekki vera viss með það hvort um rangstöðu var að ræða eða ekki.

„Ég er ekki viss um hvort hann hafi verið rangstæður þegar hann kom boltanum yfir línuna, en ég er hins vegar mjög ánægður með að það hafi verið dæmt mark. Ég var eiginlega orðinn alveg viss um að dómararnir myndu dæma þetta af því þeir töluðu svo lengi saman. En við áttum hins vegar þetta mark skilið," sagði Eddie Howe.
Athugasemdir
banner
banner
banner