FRÉTTIR24.07.2025, 17:30
Wolfsburg hefur fengið danska landsliðsmanninn Jesper Lindström frá Napoli. Um lánssamning er að ræða með möguleika á kaupum eftir tímabilið.
Þessi 25 ára leikmaður var á láni hjá Everton í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Hann mun klæðast treyju númer 19 í þýsku Bundesligunni.
FRÉTTIR24.07.2025, 17:21
Varnarmaðurinn Adam Örn Arnarson hefur yfirgefið Fram og er genginn í raðir Leiknis að nýju.
<i>„Við bjóðum Adam velkominn en hann skrifaði undir samning í dag og bindum miklar vonir við endurkomu hans til félagsins,"</i> segir í tilkynningu Leiknis.
Adam er 29 ára gamall hægri bakvörður sem lék með Leikni í Bestu deildinni 2022 en var á sínu þriðja ári hjá Fram. Hann hefur aðeins leikið tvo leiki í Bestu deildinni í sumar.
Leiknismenn vonast til að Adam hjálpi liðinu í baráttu við falldrauginn en Breiðhyltingar, sem mæta HK í Kórnum á morgun, eru í ellefta sæti Lengjudeildarinnar.
FRÉTTIR24.07.2025, 17:13
Cristhian Mosquera er formlega orðinn leikmaður Arsenal en félagið hefur gengið frá kaupum á honum frá Valencia.
Mosquera er spænskur U21 landsliðsmaður og miðvörður sem getur einnig spilað sem hægri bakvörður. Hann hefur spilað 90 leiki fyrir Valencia.
Mosquera er keyptur til að koma í stað Takehiro Tomiyasu sem yfirgaf Arsenal í sumar. Honum er ætlað að keppa við miðverði Arsenal, þá William Saliba og Gabriel Magalhaes, um sæti í liðinu.
<i>„Þetta er tækifæri sem ég gat ekki látið renna mér úr greipum. Ég er kominn í risastórt sögufrægt félag. Ferill minn hefur þróast hraðar en ég bjóst við og ég hef þurft að þroskast hratt,"</i> segir Mosquera við heimasíðu Arsenal.
Arsenal hafði áður í glugganum keypt Martin Zubimendi, Kepa Arrizabalaga, Christian Nörgaard og Noni Madueke. Þá er Viktor Gyökeres nálægt því að ganga í raðir félagsins.
FRÉTTIR24.07.2025, 17:00
Newcastle United hefur fengið til sín Suður-kóreska vængmanninn Seung-soo Park frá Suwon Bluewings í heimalandi hans. Hann fer fyrst í U21 liðið hjá Newcastle.
Park er 18 ára gamall og hefur spilað 28 aðalliðsleiki fyrir Bluewings, skorað eitt mark og átt þrjár stoðsendingar.
Park á fimm U20 leiki með Suður-Kóreu og segir að það sé mikill heiður að ganga í raðir Newcastle United.
<i>„Þetta er stórt skref fyrir mig og ég er gríðarlega þakklátur fyrir þá trú sem félagið hefur á mér. Ég er spenntur fyrir því að þróast hérna, læra af þjálfurunum og gera allt sem ég get til að verða eins góður leikmaður og hægt er,"</i> segir Park.
FRÉTTIR24.07.2025, 16:30
Axel Freyr Ívarsson er mættur aftur í Kára á láni frá Fjölni út yfirstandandi tímabil.
Axel er kraftmikill og hraður vinstri kantmaður sem skoraði níu mörk í 3. deild með Kára síðasta sumar. Kári vann 3. deildina á síðasta ári og var Axel þar algjör lykilmaður.
FRÉTTIR24.07.2025, 15:00
Varnarmaðurinn Ísak Aron Ómarsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Íþróttafélag Reykjavíkur.
Ísak er uppalinn HK-ingur og á að baki sex leiki í Bestu deildinni með þeim.
Hann er fæddur árið 2004 en í sumar hefur hann verið á láni hjá toppliði 2. deildarinnar, Ægi.
FRÉTTIR24.07.2025, 14:30
Framherjinn Andri Freyr Jónasson er genginn í raðir Gróttu á láni frá Aftureldingu út tímabilið. Andri er 27 ára og uppalinn Mofellingur. Hann hefur spilað allan sinn feril með Aftureldingu fyrir utan tvö tímabil með Fjölni.
Í sumar hefur Andri komið við sögu í sjö leikjum í Bestu deildinni með Aftureldingu en í fyrra lék hann 18 leiki þegar Mosfellingar tryggðu sér sæti í efstu deild í fyrsta sinn. Alls á hann að baki 205 KSÍ leiki og hefur í þeim skorað 88 mörk, þar af 24 mörk í 30 leikjum í C-deild.
FRÉTTIR24.07.2025, 13:04
Pervis Estupinan hefur gengið í raðir ítalska liðsins AC Milan frá Brighton fyrir um 17 milljónir punda.
Ekvadorski landsliðsvarnarmaðurinn hefur verið reglulegur byrjunarliðsmaður hjá Brighton síðan hann gekk í raðir félagsins frá Villarreal 2022 og skorað fimm mörk í 104 leikjum.
Hann verður fyrsti Ekvadorinn til að spila fyrir AC Milan.
FRÉTTIR24.07.2025, 11:30
Víðir Garði hefur fengið tvo leikmenn á láni en félagið er í harðri fallbaráttu í 2. deild.
Valur Hákonarson kemur frá Keflavík og Erlendur Guðnason kemur frá Njarðvík.
FRÉTTIR24.07.2025, 11:00
Wolves hefur gengið frá kaupum á framherjanum Jhon Arias frá brasilíska félaginu Fluminense.
Kaupverið er 17 milljónir evra en það gæti hækkað í 22 milljónir evra með árangurstengdum greiðslum.
FRÉTTIR24.07.2025, 09:45
FH hefur fengið frábæran liðsstyrk fyrir átökin sem eru framundan í Bestu deild kvenna því Andrea Rán Hauksdóttir hefur samið við félagið.
Hún kemur aftur til FH eftir að hafa spilað með Tampa Bay í Bandaríkjunum frá því í fyrra.
FRÉTTIR24.07.2025, 09:00
Þýska félagið Werder Bremen hefur staðfest kaupin á Samuel Mbangula frá Juventus.
FRÉTTIR24.07.2025, 08:30
Slóvakinn David Hancko er mættur til spænska félagsins Atlético Madríd eftir að hafa orðið fyrir hrikalegri höfnun frá sádi-arabíska félaginu Al Nassr.
FRÉTTIR24.07.2025, 07:00
Enski miðvörðurinn Ashley Phillips verður áfram á láni hjá Stoke City frá Tottenham en þetta staðfestu félögin í gær.
FRÉTTIR24.07.2025, 06:00
Nýliðar Wrexham í B-deildinni hafa landað enska framherjanum Josh Windass á frjálsri sölu frá Sheffield Wednesday.
FRÉTTIR23.07.2025, 20:12
Brasilíski sóknarmaðurinn Roberto Firmino er genginn í raðir Al Sadd frá Al Ahli.
FRÉTTIR23.07.2025, 19:10
Englandsmeistarar Liverpool hafa fest kaup á franska sóknarmanninum Hugo Ekitike frá þýska félaginu Eintracht Frankfurt fyrir 79 milljónir punda.
FRÉTTIR23.07.2025, 17:43
Marcus Rashford er genginn til liðs við Barcelona á láni frá Manchester United. Börsungar geta gert skiptin varanleg fyrir 26 milljónir punda á meðan lánsdvölinni stendur.
FRÉTTIR23.07.2025, 13:37
Afturelding, sem er á botni Lengjudeildar kvenna, hefur bætt við sig tveimur erlendum leikmönnum fyrir seinni hluta tímabilsins.
Briana Esteves kemur frá TA WPSL í Bandaríkjunum og getur spilað flestar stöður á vellinum. Hún mun styrkja Aftureldingu sóknarlega á vellinum.
FRÉTTIR23.07.2025, 09:58
Írski sóknarmaðurinn Evan Ferguson er genginn í raðir Roma á eins árs lánssamningi frá Brighton.
Síðasta tímabil var erfitt fyrir Ferguson, hann glímdi við meiðsli og náði sér svo ekki á strik og færðist aftar í goggunarröðinni hjá Brighton.
<i>„Hann vill spila reglulega og þetta er tækifæri fyrir hann í sterkri deild og með möguleika á því að spila í Evrópukeppni,"</i> segir Fabian Hurzeler, stjóri Brighton.
Ferguson var lánaður til West Ham í seinni hlusta síðasta tímabils en spilaði bara átta leiki undir stjórn Graham Potter. Hann er 20 ára gamall og var tilnefndur sem besti ungi leikmaðurinn tímabilið 2022-23 þegar hann skoraði níu mörk fyrir Brightob.
Hann hefur hinsvegar aðeins skorað eitt mark í félagsliðabolta síðan í nóvember 2023 og ólíklegt var að hann fengi mikið að spila í upphafi nýs tímabils ef hann hefði verið áfram hjá Brighton.