Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24399 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR08.04.2025, 21:43

Alfons og Willum upp í Championship (Staðfest)

Birmingham féll úr Championship deildinni á síðasta leikdegi á síðustu leiktíð en liðið er búið að tryggja sér endurkomu í deildina á næstu leiktíð.

FRÉTTIR08.04.2025, 06:00

Eva Ýr í Víking R. (Staðfest)

Eva Ýr Helgadóttir hefur lokið félagaskiptum frá Smára yfir til Víkings R. þar sem hún verður þriðji markvörður liðsins.

FRÉTTIR05.04.2025, 17:57

PSG franskur meistari í þrettánda sinn (Staðfest)

PSG er franskur meistari fjórða árið í röð eftir sigur á Angers í dag. Desire Doue skoraði eina mark leiksins eftir fyrirgjöf frá Khvicha Kvaratskhelia eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik.

FRÉTTIR05.04.2025, 07:00

Unnar Ari heim í KFA (Staðfest)

Unnar Ari Hansson er mættur aftur í KFA en hann lék í yngriflokkum með Fjarðabyggð/Leikni. Hann hóf meistaraflokksferilinn með Leikni F. Hann hefur einnig leikið með Þrótti Vogum og KFK en hann lék síðast með KFA sumarið 2023.

FRÉTTIR04.04.2025, 13:27

KV kynnir þrjár goðsagnir (Staðfest) - Geitin á leiðinni?

KV hefur kynnt til leiks þrjár goðsagnir með glæsilegu myndbandi á samfélagsmiðlum sínum. Það eru þeir Aron Bjarki Jósepsson, Pálmi Rafn Pálmason og Theódór Elmar Bjarnason sem eiga allir glæsilegan feril að baki í KR.

FRÉTTIR04.04.2025, 11:42

De Bruyne yfirgefur Man City í sumar (Staðfest)

Kevin De Bruyne hefur staðfest að hann muni yfirgefa Manchester City þegar samningur hans rennur út. De Bruyne er 33 ára og hefur unnið sextán bikara síðan hann kom til City frá Wolfsburg 2015, þar á meðal sex úrvalsdeildartitla og Meistaradeildina 2023. Hann er einn af bestu miðjumönnum í sögu deildarinnar.

FRÉTTIR03.04.2025, 19:27

FH fær landsliðsmann úr röðum AIK (Staðfest)

FH hefur fengið 22 ára miðvörð lánaðan úr röðum AIK í Svíþjóð. Sá heitir Ahmad Faqa og verður í Hafnarfirði til 31. júlí. Mikið hefur verið rætt um þörf FH fyrir því að fá miðvörð í hópinn fyrir tímabilið.

FRÉTTIR03.04.2025, 13:37

Hildur Þóra í FH (Staðfest)

FH hefur fengið Hildi Þóru Hákonardóttur í sínar raðir en hún kemur til félagsins frá Breiðabliki. Hildur er 23 ára varnarmaður sem verður 24 ára í maí. Hún hefur síðustu ár verið í námi í Bandaríkjunum og spilað með háskólaliði Harvard háskólans og því ekki náð heilum tímabilum á Íslandi en hún lék ekkert með Blikum síðasta sumar vegna meiðsla. Hún á að baki 25 leiki fyrir yngri landsliðin og í þeim skoraði hún þrjú mörk.

FRÉTTIR02.04.2025, 15:14

Pólskur markvörður til ÍBV (Staðfest)

ÍBV hefur fengið pólska markmanninn Marcel Zapytowski í sínar raðir og skrifar hann undir samning sem gildir út tímabilið. Marcel er 24 ára og hefur leikið með Birkirkara á Möltu ásamt því að hafa leikið með Korona Kielce, Resovia Rzeszow og Wisla Plock í heimalandinu. Hann er uppalinn hjá Wisla Plock og lék þar sína fyrstu leiki á ferlinum.

FRÉTTIR01.04.2025, 15:30

Krista Sól í Grindavík/Njarðvík (Staðfest)

Krista Sól Nielsen er gengin í raðir Grindavíkur/Njarðvíkur og mun leika með liðinu í Lengjudeildinni í sumar. Hún skrifar undir þriggja ára samning við Grindavík og er því samningsbundin út tímabilið 2027.

FRÉTTIR01.04.2025, 13:30

Ólína Ágústa til Fram (Staðfest)

Ólína Ágústa Valdimarsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við Fram. Hún er fædd árið 2005 og kemur til Fram frá uppeldisfélaginu, Stjörnunni. Ólína Ágústa lék einn deildarleik með Stjörnunni í fyrra og er nú mætt í leikmannahóp nýliðanna í Fram. Hún þekkir vel til hjá Fram en hún lék með liðinu seinni hluta sumars þegar Fram var í Lengjudeildinni.

FRÉTTIR31.03.2025, 10:55

Mikaela Nótt í FHL (Staðfest)

FHL hefur fengið Mikaelu Nótt Pétursdóttir á láni frá Breiðabliki. FHL, sameinað lið Fjarðabyggðar, Hattar og Leiknis, er nýliði í Bestu deildinni eftir að hafa unnið Lengjudeildina á síðasta tímabili. Mikaela Nótt er 21 árs varnarmaður sem á að baki 29 leiki fyrir yngri landsliðin og tvo fyrir U23 landsliðið.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.