Andrea Berta nýr yfirmaður íþróttamála hjá Arsenal (Staðfest)
Andrea Berta er nýr yfirmaður íþróttamála hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Arsenal en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins í dag.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25104 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Andrea Berta er nýr yfirmaður íþróttamála hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Arsenal en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins í dag.
Þýska félagið RB Leipzig hefur staðfest brottrekstur þýska þjálfarans Marco Rose.
Danski miðjumaðurinn Christian Norgaard hefur framlengt samning sinn við Brentford til ársins 2027 en þetta tilkynnti félagið í dag.
Brasilía er búið að reka landsliðsþjálfarann sinn Dorival Júnior úr starfi eftir 4-1 tap gegn Argentínu í undankeppni Suður-Ameríkuþjóða fyrir HM.
Grótta hefur gert samning við grísk-albönsku fótboltakonuna Maria Baska.
Helgi Kolviðsson, fyrrum aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands og samherji Jürgen Klopp hjá Mainz, er tekinn við þjálfarastarfinu hjá þýska félaginu SC Pfullendorf.
Rosengård hefur fest kaup á einum efnilegasta leikmanni landsins því Ísabella Sara Tryggvadóttir er gengin í raðir félagsins. Sænska félagið kaupir Ísabellu frá bikarmeisturum Vals. <i>„Rosengård er einn stærsti klúbburinn í Skandinavíu kvennamegin og því ljóst að þetta er frábært tækifæri fyrir Ísabellu. Hún framlengdi samningi sínum við okkur um fjögur ár á dögunum en þetta er tækifæri sem býðst ekki á hverjum degi. Við erum afskaplega ánægð fyrir hennar hönd,“</I> segir Björn Steinar Jónsson formaður knattspyrnudeildar Vals. Ísabella Sara er 18 ára sóknarsinnaður miðjumaður sem kom til Vals frá KR fyrir tímabilið 2023. Hún er unglingalandsliðskona sem er nú gengin í raðir sænsku meistaranna. Þar hittir hún fyrir landsliðskonuna Guðrúnu Arnardóttur sem er í lykilhlutverki í liðinu.
Keflavík tilkynnti í dag að Emma Starr væri genginn í raðir félagsins og mun hún spila með liðinu í Lengjudeildinni í sumar. Emma er miðjumaður sem hefur m.a. leiki á Írlandi, Englandi, í Danmörku, Austurríki og síðast í Ástralíu. Emma er fædd árið 1994 og er frá Bandaríkjunum.
Leiknir R. er búinn að tryggja sér varnarmanninn efnilega Jón Arnar Sigurðsson á lánssamningi frá KR sem gildir út tímabilið.
KA hefur krækt í danska markmanninn William Tönning og verður hann hluti af leikmanahópi liðsins á komandi tímabili. Hann gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir félagið í kvöld þegar KA tekur á móti Þór klukkan 18:00 í úrslitaleik Kjarnafæðimótsins. Tönning er 25 ára Dani sem var síðast á mála hjá sænska C-deildar félaginu Ängelholms. Hann hefur á sínum ferli spilað í Danmörku, Bandaríkjunum, Svíþjóð, Færeyjum og Nýja-Sjálandi á sínum ferli.
Dagur Orri Garðarsson er genginn í raðir HK á láni frá Stjörnunni út komandi tímabil. Félögin greina frá þessu í dag. Dagur er 19 ára sóknarmaður og er uppalinn hjá Stjörnunni. Hann lék með KFG í 2. deildinni í fyrra og skoraði 10 mörk í 17 leikjum. Dagur er sonur markaskorarans Garðars Jóhannssonar sem lék átta landsleiki á sínum tíma.
Reykjavíkur Þróttarar hafa fengið tvo leikmenn frá Fram til að þétta raðirnar fyrir komandi átök í Lengjudeildinni. Markmaðurinn Benjamín Jónsson er mætur í Laugardalinn en samningur hans við Fram er úr gildi og hefur hann fengið félagaskipti í Þrótt. Benjamín er fæddur árið 2003 og var á láni hjá Þrótti Vogum á síðasta tímabili. Hann mun væntanlega veita Þórhalli Ísaki Guðmundssyni og Hilmari Erni Péturssyni samkeppni um markmannsstöðuna hjá Þrótturum. Benjamín er uppalinn hjá Val en skipti yfir í Fram um sumarið 2019. Hann varði mark Fram í einum deildarleik sumarið 2023.
Vala Björk Jónsdóttir er gengin til liðs við Keflavíkur og tekur slaginn með liðinu í Lengjudeildinni í sumar.
Liðsval Arnars Gunnlaugssonar og fleiri landsliðsfréttir komast á lista yfir mest lesnu fréttir vikunnar. Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.
Grótta tilkynnti í dag að Daníel Agnar Ásgeirsson væri genginn í raðir félagsins og hefur hann gert tveggja ára samning við Gróttu. Miðjumaðurinn hóf feril sinn á Húsavík áður en hann flutti vestur á firði og gekk í raðir BÍ/Bolungarvík. Hann hélt næst til Stjörnunnar og var í tvö ár í Garðabænum. Svo flutti hann aftur vestur og hefur verið þar síðan. Á árunum 2016 til 2024 spilaði Daníel 91 keppnisleik með Vestra í deild og bikar og eitt tímabil með Herði í 5. deild. Hann er fæddur árið 1997 og kom við sögu í tveimur leikjum með Vestra í Bestu deildinni í fyrra.
ÍA er búið að festa kaup á Gísla Laxdal Unnarssyni sem kemur til félagsins úr röðum Vals.
Ítalska félagið Juventus hefur staðfest þær fregnir að Thiago Motta hafi verið vikið úr starfi aðalþjálfara.
Völsungur rétt missti af sæti í Lengjudeild kvenna í fyrra og eru Húsvíkingar að styrkja hópinn sinn til að gera atlögu að 2. deildartitlinum í ár.
Það var að berast stór tilkynning úr herbúðum KFA þar sem Austfirðingar eru búnir að krækja í öflugan liðsstyrk auk þess að semja við fyrirliðann.
Kristín Sara Arnardóttir, sem fædd er árið 2008, hefur verið lánuð frá Breiðabliki í Fjölni og verður með liðinu í 2. deild í sumar. Varnarmaðurinn Kristín Sara á að baki þrjá U16 landsleiki en hún hefur síðustu tvö tímabil leikið með Augnabliki.