Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24401 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR20.02.2025, 17:30

Ásbjörn og Vigfús stýra Hvíta Riddaranum (Staðfest)

Hvíti Riddarinn tilkynnti í dag að nýtt teymi væri tekið við þjálfun liðsins. Ásbjörn Jónsson verður aðalþjálfari og Vigfús Geir Júlíusson verður honum til halds og trausts. Ásbjörn tekur við af Ásgeiri Frank Ásgeirssyni sem hélt í Fjölni í vetur og er þar aðstoðarþjálfari. Hvíti Riddarinn er í 3. deild, liðið endaði í 6. sæti deildarinnar í fyrra. Félagið er venslafélag Aftureldingar.

FRÉTTIR20.02.2025, 17:00

Tómas Orri í FH (Staðfest)

Tómas Orri Róbertsson er búinn að skrifa undir samning við FH og mun því spila í Hafnarfirði í sumar eftir að hafa alist upp í Kópavogi með Breiðabliki.

FRÉTTIR20.02.2025, 14:13

Atli Sigurjóns óvænt áfram hjá KR (Staðfest)

Atli Sigurjónsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við KR og er því samningsbundinn út tímabilið 2026. Fyrri samningur hans rann út eftir síðasta tímabil og hefur hann því verið samningslaus í þrjá mánuði. Atli er örvfættur kantmaður sem fæddur er árið 1991. Hann er uppalinn hjá Þór og hefur einnig leikið með KR og Breiðabliki á sínum ferli.

FRÉTTIR19.02.2025, 16:38

Arnór Sig til Malmö (Staðfest)

Arnór Sigurðsson var í dag tilkynntur sem nýr leikmaður sænsku meistaranna í Malmö. Hann kemur á frjálsri sölu eftir að samningi hans við Blackburn var rift á dögunum. Hann skrifar undir samning sem gildir út næstu þrjú tímabil og verður í treyju númer 8. Skagamaðurinn er 25 ára gamall og á að baki 34 landsleiki. Hann hefur verið talsvert frá síðasta hálfa árið, bæði vegna meiðsla og veikinda en er að snúa aftur á völlinn. Í 41 leik með Blackburn skoraði Arnór átta mörk og lagði upp fimm.

FRÉTTIR19.02.2025, 09:51

Aida Kardovic til FHL (Staðfest)

FHL heldur áfram að safna liði fyrir komandi átök í Bestu deildinni. FHL vann Lengjudeildina í fyrra og er mætt í deild þeirra bestu. Í morgun greindi félagið frá komu Aidu Karodvic til félagsins. Hún er þriðji leikmaðurinn sem liðið fær til sín í vetur. Aida er fjölhæfur miðjumaður sem getur líka spilað allar fremstu stöðurnar á vellinum. Aida spilaði í Creighton háskólanum við góðan orðstír auk þess sem hún á 6 leiki með U19 landsliði Serbíu. Við bjóðum Aidu velkomna í FHL hópinn.

FRÉTTIR19.02.2025, 06:00

María Lena í HK (Staðfest)

María Lena Ásgeirsdóttir snýr aftur til HK eftir tveggja ára fjarveru en hún lék síðast með Sindra í 2. deild í fyrra.

FRÉTTIR18.02.2025, 21:39

Gonzalo Zamorano yfirgefur Selfoss (Staðfest)

Selfoss hefur sent frá sér tilkynningu þess efnis að Gonzalo Zamorano mun ekki spila með meistaraflokki karla í sumar eftir að hafa verið besti leikmaður liðsins í 2. deildinni í fyrra.

FRÉTTIR18.02.2025, 15:05

ÍA krækir í unglingalandsliðsmann frá Haukum (Staðfest)

ÍA heldur áfram að sækja unga leikmenn þennan veturinn því í dag var greint frá því að Jón Viktor Hauksson væri genginn í raðir félagsins. Jón Viktor er fæddur árið 2009 og kemur frá Haukum. Hann er uppalinn hjá Haukum og hefur stigið sín fyrstu skref í meistaraflokki. Hann spilaði tvo leiki í 2. deild síðasta sumar og einn leik í Fótbolti.net bikarnum. Í þeim leik, sem var gegn Selfossi, skoraði Jón Viktor sitt fyrsta meistaraflokksmark.

FRÉTTIR18.02.2025, 11:54

Gylfi Þór í Víking (Staðfest)

Gylfi Þór Sigurðsson er genginn í raðir Víkings en félagið kaupir hann frá Val. Félagið þakkar Val fyrir heiðarleg og goð samskipti í kringum kaupin. Valur samþykkti einnig tilboð frá Breiðabliki í Gylfa en hann valdi að ganga í raðir Víkings. Kaupverðið er tæplega 20 milljónir. Gylfi er 35 ára miðjumaður, hann er besti- og markahæsti leikmaður landsliðsins í sögunni. Hann hafði verið hjá Val í tæplega ár. Hann skoraði 11 mörk í 19 leikjum á síðasta tímabili og var í liði tímabilsins. Víkingur reyndi að fá Gylfa þegar hann kom í íslenska boltann á síðasta ári en þá varð Valur fyrir valinu.

FRÉTTIR18.02.2025, 10:13

Gunnar Jónas framlengir við Vestra (Staðfest)

Vestri tilkynnti í dag að Gunnar Jónas Hauksson (1999) væri búinn að framlengja samning sinn við Vestra og mun taka slaginn með liðinu í sumar. Þetta eru gleðifréttir fyrir Vestra því Gunnar Jónas kom öflugur inn í lið Vestra á síðasta tímabili. Hann skoraði eitt af eftirminnilegri mörkum síðasta sumars þegar hann jafnaði fyrir Vestra gegn Víkingi á Víkingsvelli. Bakvörðurinn skoraði tvö mörk í 21 deildarleik.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.