Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24401 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR17.02.2025, 19:30

Frá HK aftur til Kolding (Staðfest)

Danski markvörðurinn Christoffer Petersen er farinn frá HK eftir að samningurinn hans rann út og er genginn til liðs við Kolding í heimalandinu.

FRÉTTIR17.02.2025, 17:41

Birkir Jakob í Val (Staðfest)

Birkir Jakob Jónsson er genginn í raðir Vals en hann kemur frá ítalska stórliðinu Atalanta þar sem hann hefur verið í tæp fjögur ár. Birkir skrifar undir fjögurra ára samning við Val. Hann var orðaður við Val fyrir um ári síðan en þá varð lendingin að hann yrði áfram úti hjá Atalanta. Birkir Jakob er framherji sem var í yngri flokkum Fram, Fylkis og Breiðabliks áður en hann fór til Ítalíu árið 2021. Í hlaðvarpsþættinum <i>Dr. Football</I> var sagt að Breiðablik hefði einnig haft áhuga á að fá Birki Jakob í sínar raðir. Hann er fæddur árið 2005 og á að baki 11 leiki fyrir unglingalandsliðin. Hann hefur glímt við mikið af meiðslum síðustu misseri.

FRÉTTIR17.02.2025, 17:00

Samningi Arnórs við Blackburn rift (Staðfest)

Arnór Sigurðsson hefur fengið samningi sínum við Blackburn Rovers rift. Þetta tilkynnti Blackburn rétt í þessu og er tekið fram að félagið og Arnór hefðu komist að sameiginlegri niðurstöðu. Arnór var samningsbundinn félaginu fram í júní en hafði gefið það út að hann myndi ekki framlengja samning sinn. Eftir að janúarglugginn lokaði var leikmannahópur Blackburn fyrir seinni hluta tímabilsins opinberaður og þar var nafn Arnórs hvergi. Arnór var mjög ósáttur við enska félagið og lét þá óánægju sína í ljós í viðtali við <i>Vísi</I>.

FRÉTTIR17.02.2025, 14:26

Danijel Djuric til Króatíu (Staðfest)

Víkingur er búinn að selja Danijel Dejan Djuric til króatíska félagsins NK Istra. Það má lesa út frá því að Danijel hefur fengið félagaskipti til Króatíu á heimasíðu knattspyrnusambandsins. Fjallað var um áhuga Istra á Danijel fyrr í dag og á æfingu Víkinga í Aþenu sást þegar Danijel var dreginn til hliðar og ræddi þar við þjálfarann Sölva Geir Ottesen.

FRÉTTIR17.02.2025, 12:00

Olga Ingibjörg lánuð í Fram (Staðfest)

Olga Ingibjörg Einarsdóttir er gengin til liðs við Fram að láni frá Breiðabliki. Olga er 18 ára gamall miðvörður sem er uppalin hjá Blikum og á, þrátt fyrir ungan aldur tæplega 70 meistaraflokksleiki, flesta í Lengjudeildinni með Augnabliki og svo HK þar sem hún spilaði sem lánsmaður á síðasta tímabili.

FRÉTTIR15.02.2025, 15:58

Eggert Aron til Brann (Staðfest)

Eggert Aron Guðmundsson er genginn í raðir Brann í Noregi frá sænska liðinu Elfsborg. Hann hitti liðið í æfingabúðum á Marbella á Spáni í gær og gekkst undir læknisskoðun áður en skiptin gengu í gegn. Hann er fyrsti íslenski leikmaðurinn sem gengur í raðir Brann eftir að Freyr Alexandersson var ráðinn þjalfari liðsins í síðasta mánuði.

FRÉTTIR15.02.2025, 12:45

Óðinn Bjarkason til ÍR (Staðfest)

ÍR tilkynnti í hádeginu i dag að Óðinn Bjarkason sé genginn í raðir félagsins frá KR. Óðinn kemur á láni frá KR út komandi tímabil í Lengjudeildinni.

FRÉTTIR14.02.2025, 17:25

Tindastóll sækir sinn fyrsta leikmann í vetur (Staðfest)

Nicola Hauk hefur skrifað undir samning um að spila með kvennaliði Tindastóls á komandi keppnistímabili. Nicola er þýskur varnar- og miðjumaður. Hún er með frábæra reynslu úr háskólaboltanum í Bandaríkjunum en hún spilaði upp alla yngri flokkana í Þýskalandi.

FRÉTTIR14.02.2025, 17:00

Stefán Ómar heim í Hött/Hugin (Staðfest)

Seyðfirðingurinn Stefán Ómar Magnússon er kominn heim í Hött/Hugin og mun leika með liðinu í sumar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

FRÉTTIR14.02.2025, 15:55

Grótta fær leikmenn frá Víkingi og KR (Staðfest)

Grótta er laus úr félagaskiptabanni og tilkynnti í dag um komu tveggja nýrra leikmanna. Báðir eru þeir fæddir árið 2005. Hrannar Ingi Magnússon kemur frá Víkingi en hann spilar oftast sem bakvörður. Hann á að baki tvo leiki í Bestu deildinni. Fyrri hluta síðasta tímabils var hann á láni hjá Grindavík. Hann skrifar undir þriggja ára samning við Gróttu.

FRÉTTIR14.02.2025, 13:00

Íslandsmeistararnir komnir með nýjan markmann (Staðfest)

Breiðablik hefur fengið félagaskipti fyrir Katherine Devine en Kate er 23 ára markmaður. Hún er bandarísk en kemur frá Treaty United á Írlandi þar sem hún stoppaði stutt. Hún var nýkomin til Írlands, kynnt sem nýr leikmaður félagsins í síðasta mánuði, úr Vand­er­bilt-háskól­an­um í Nashville þar sem hún hélt marki sínu hreinu 23 sinnum í 59 leikj­um.

FRÉTTIR13.02.2025, 16:00

Sami Kamel aftur til Noregs (Staðfest)

Sami Kamel hefur yfirgefið Keflavík og er genginn í raðir Brattvåg í Noregi á nýjan leik. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net fór Keflavík ekki í samningsviðræður við Kamel eftir síðasta tímabil þegar samningur hans rann út. Sami Kamel er 31 árs sóknarsinnaður miðjumaður sem kom til Kelfavíkur fyrir tímabilið 2023. Hann skoraði sex mörk í 17 deildarleikjum 2023 þegar Keflavík féll úr Bestu deildinni. Á síðasta tímabili skoraði hann fjögur mörk í 19 leikjum með Keflavík í Lengjudeildinni og fjögur mörk í þremur bikarleikjum, mörkin komu gegn verðandi Íslandsmeisturum Breiðabliks í 32-liða úrslitum og ÍA í 16-liða úrslitum.

FRÉTTIR13.02.2025, 15:00

Þorri Mar í Stjörnuna (Staðfest) - „Kem hingað með skýr markmið"

Þorri Mar Þórisson er genginn í raðir Stjörnunnar en hann kemur til félagsin eftir eitt og hálft ár hjá sænska félaginu Öster. Þorri fékk sig lausan frá Öster í vikunni og er mættur í Garðabæ. Þorri er uppalinn hjá Dalvík/Reyni og hóf meistaraflokksferil sinn þar. Hann fór svo í KA, var lánaður í Keflavík og var svo í nokkuð stóru hlutverki með KA tímabilin 2021-23. Þorri er 25 ára bakvörður sem getur spilað báðu megin og samkvæmt heimildum sjá Stjörnumenn hann einnig sem kost í miðvarðastöðuna. Hann er tvíburabróðir Nökkva Þeys sem er í dag hjá Spörtu Rotterdam í Hollandi.

FRÉTTIR13.02.2025, 10:40

Eustace farinn frá Blackburn og tekinn við Derby (Staðfest)

John Eustace er tekinn við sem stjóri Derby og skrifar undir þriggja og hálfs árs samning við félagið. Það vekur athygli því Derby er í fallbaráttu og Eustace var í starfi hjá Blackburn sem var í nokkuð góðri stöðu ofarlega í töflunni. Blackburn er nítján stigum og sextán sætum fyrir ofan Derby. Fyrsti leikur Eustace verður gegn QPR á morgun.

FRÉTTIR12.02.2025, 17:17

Herra Fjölnir ráðinn þjálfari Fjölnis (Staðfest)

Gunnar Már Guðmundsson var í dag ráðinn þjálfari Fjölnis. Hann er oft kallaður Herra Fjölnir en hann lék lengi fyrir félagið á sínum leikmannaferli. Hann tekur við af Úlfi Arnari Jökulssyni sem var látinn fara í byrjun vikunnar. Gunnar Már kemur til Fjölnis frá Þrótti Vogum en hann stýrði Þrótturum í 3. sæti 2. deildar á sínu fyrsta og eina ári með liðið.

FRÉTTIR12.02.2025, 15:30

HK sækir bandarískan miðjumann (Staðfest)

HK hefur bætt við sig nýjum erlendum leikmanni fyrir komandi keppnistímabil. Natalie Wilson er 22 ára sóknarsinnaður miðjumaður frá Bandaríkjunum. Hún spilaði með Penn State í bandaríska háskólaboltanum, þar sem hún spilaði yfir 100 leiki á seinastliðnum fimm árum.

FRÉTTIR12.02.2025, 12:41

Birkir Már til Nacka (Staðfest)

Eins og fjallað hefur verið um síðustu daga er Birkir Már Sævarsson að halda fótboltaferli sínum áfram. Hann var í dag tilkynntur sem nýr leikmaður Nacka FC í Svíþjóð. Liðið er í fjórðu efstu deild Svíþjóðar. Valsarinn varð fertugur í nóvember og tók í fyrra sitt síðasta tímabil með uppeldisfélaginu. Fjölskylda hans flutti til Svíþjóðar fyrir tímabilið 2024 og Birkir er þangað mættur núna. Hann snýr aftur í sænska boltann eftir sjö ára fjarveru en hann lék með Hammarby á árunum 2015-17.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.