Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24403 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR05.02.2025, 11:35

Hákon Dagur heim í ÍR (Staðfest) - Renato og Guðjón Máni framlengja

ÍR-ingar hafa fengið öflugan liðsstyrk fyrir komandi átök í Lengjudeildinni því þeir hafa fengið uppalinn leikmann aftur í sínar raðir. Hann er sóknarsinnaður miðjumaður sem getur einnig leyst stöðu kantmanns og framherja. Hákon Dagur Matthíasson er mættur aftur frá Víkingi en hann skipti frá ÍR fyrir tímabilið 2022. Fyrstu tvö tímabilin lék hann með 2. flokki Víkings en á síðasta tímabili kom hann á láni til ÍR. Hákon Dagur er fæddur árið 2005 og á að baki fjóra leiki fyrir U17 landsliðið. Á síðasta tímabili 20 leikjum með ÍR og skoraði tvö mörk. Hann skrifar undir samning við ÍR sem gildir út 2027.

FRÉTTIR05.02.2025, 11:30

Frá Þór í dönsku B-deildina (Staðfest)

Danski miðjumaðurinn Marc Rochester Sörensen er genginn í raðir HB Köge í Danmörku eftir tvö tímabil hjá Þór á Akureyri. Hann er 32 ára og skrifar undir eins og hálfs árs samning við félagið sem er í botnbaráttu dönsku B-deildarinnar.

FRÉTTIR05.02.2025, 11:20

Kristófer Orri í KR (Staðfest)

Kristófer Orri Pétursson er genginn í raðir KR frá Gróttu og skrifar undir eins árs samning í Vesturbænum. Kristófer (1998) er sóknarmaður sem uppalinn er hjá Gróttu og hefur spilað allan sinn feril með uppeldisfélaginu, alls 200 leiki og þar af voru 18 í efstu deild tímabilið 2020. Hann var fyrirliði Gróttu á síðasta tímabili. KR hefur verið með þrjá framherja í sínum leikmannahópi í vetur en það eru þeir Eiður Gauti Sæbjörnsson, Jakob Gunnar Sigurðsson og Óðinn Bjarkason. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er mjög líklegt að þeir Óðinn og Jakob verði lánaðir frá félaginu. Kristófer þekkir vel til þjálfara KR, Óskars Hrafns Þorvaldssonar, eftir að hafa leikið undir hans stjórn tímabilin 2018-19.

FRÉTTIR05.02.2025, 11:09

Kristófer Snær frá Molde til Víðis (Staðfest)

Kristófer Snær Jóhannsson hefur fengið félagaskipti í Víði eftir að hafa verið á mála hjá norska stórliðinu Molde í eitt og hálft ár. Kritófer fór til Molde haustið 2023 en er nú mættur aftur heim á Suðurnesin. Hann spilaði 20 leiki með varaliði Molde í fyrra og skoraði tvö mörk. Hann er miðjumaður/kantmaður sem fæddur er árið 2006 og kom við sögu í fimm keppnisleikjum tímabilið 2023. Hann er uppalinn hjá Keflavík en skipti yfir í Njarðvík fyrir tímabilið 2023.

FRÉTTIR05.02.2025, 10:07

Frá Fram í fjórðu efstu deild Þýskalands (Staðfest)

Danski framherjinn Jannik Pohl hefur fengið félagaskipti frá Fram til Þýskalands þar sem hann er genginn í raðir 1. FC Phönix Lübeck. Liðið er í fjórðu efstu deild sem er svæðisskipt, liðið er í Regionalliga Nord. Jannik Pohl var í þrjú tímabil hjá Fram en var talsvert frá vegna meiðsla, sérstaklega síðustu tvö tímabil. Hann spilaði 19 leiki tímabili 2022, átta leiki 2023 og fjóra leiki á síðasta tímabili. Hann skoraði átta mörk 2022, tvö mörk 2023 en komst ekki á blað í deildinni í fyrra.

FRÉTTIR04.02.2025, 18:47

Adam Ægir til Novara (Staðfest)

Vængmaðurinn Adam Ægir Pálsson hefur fundið sér nýtt félag á Ítalíu en hann er kominn til ítalska C-deildarliðsins Novara á láni frá Val út tímabilið.

FRÉTTIR04.02.2025, 16:13

Heiðdís aftur í Breiðablik (Staðfest)

Heiðdís Lillýardóttir er gengin í raðir Breiðabliks á nýjan leik eftir að hafa verið í atvinnumennsku. Heiðdís spilaði með Breiðablik frá 2017 til ársins 2022 og varð bæði Íslands-og bikarmeistari og með liðinu á þeim tíma.

FRÉTTIR04.02.2025, 14:18

Flakkarinn Felix kynntur hjá AC Milan (Staðfest)

Portúgalinn Joao Felix er kominn á lánssamningi frá Chelsea til AC Milan. Ekki er nein klásúla um framtíðarkaup en Milan borgar laun leikmannsins út tímabilið. Þetta eru fjórðu félagaskipti Felix á aðeins þremur árum en hann hefur ekki náð að festa niður rótum. Hann byrjaði tímabilið 2022-23 hjá Atletico Madrid en var lánaður til Chelsea um mitt tímabil. Hann tók svo tímabil hjá Barcelona og nú eftir að hafa verið sex mánuði hjá Chelsea er hann genginn í raðir AC Milan.

FRÉTTIR04.02.2025, 14:00

Chante tekur hanskana fram og snýr heim á Selfoss (Staðfest)

Markvörðurinn Chante Sandiford hefur tekið hanskana af hillunni og gert eins árs samning við knattspyrnudeild Selfoss. Chante er Selfyssingum kunnug en hún varði mark liðsins í þrjú tímabil árin 2015-2017 og er Selfoss hennar fyrsta félag á Íslandi. Hún var á tíma fyrirliði liðsins. Þaðan gekk hún til liðs við Avaldnses í Noregi og hefur síðan þá leikið með Haukum og Stjörnunni á Íslandi. Eftir tímabilið 2022 gerðist Chante aðstoðarþjálfari kvennaliðs Grindavíkur.

FRÉTTIR04.02.2025, 13:30

Liverpool lánar Danns til Sunderland (Staðfest)

Sunderland hefur staðfest að Jayden Danns sé kominn til félagsins á láni frá Liverpool. Félagaskiptaglugginn lokaði í gærkvöldi en Sunderland sendi alla pappíra inn áður en glugginn lokaði. Félagið var svo að opinbera skiptin núna.

FRÉTTIR04.02.2025, 12:54

Katie Cousins yfirgefur Val (Staðfest) - Fer hún aftur í Þrótt?

Katie Cousins, sem hefur verið ein besta fótboltakonan á Íslandi síðustu árin, mun ekki leika áfram með Val. Félagið reyndi að endursemja við hana en það tókst ekki. Fótbolti.net hefur fengið þetta staðfest en Orri Rafn Sigurðarson sagði fyrst frá á samfélagsmiðlinum <i>X</I>.

FRÉTTIR04.02.2025, 07:30

Gourna-Douath og Nelsson til Roma (Staðfest)

Ítalska félagið Roma festi kaup á tveimur leikmönnum undir lok gluggans í gær en franski miðjumaðurinn Lucas Gourna-Douath og danski varnarmaðurinn Victor Nelsson komu til félagsins frá Salzburg og Galatasaray.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.