Mainoo og Garnacho gætu verið seldir í sumar - Cunha hefur áhuga á að fara í stærra félag - Guardiola fúll út í Walker
   mið 05. febrúar 2025 11:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kristófer Snær frá Molde til Víðis (Staðfest)
Mynd: Molde
Kristófer Snær Jóhannsson hefur fengið félagaskipti í Víði eftir að hafa verið á mála hjá norska stórliðinu Molde í eitt og hálft ár.

Kritófer fór til Molde haustið 2023 en er nú mættur aftur heim á Suðurnesin. Hann spilaði 20 leiki með varaliði Molde í fyrra og skoraði tvö mörk.

Hann er miðjumaður/kantmaður sem fæddur er árið 2006 og kom við sögu í fimm keppnisleikjum tímabilið 2023. Hann er uppalinn hjá Keflavík en skipti yfir í Njarðvík fyrir tímabilið 2023.

Kristófer Snær er með tvöfalt ríkisfang en móðir hans er frá Írlandi og faðir hans er íslenskur. Hann var valinn í æfingahóp U19 landsliðs Írlands í ágúst í fyrra.

Víðir endaði í 2. sæti 3. deildar á síðasta tímabili og verður í 2. deild á komandi tímabili. Sveinn Þór Steingrímsson er þjálfari Víðis.
Athugasemdir
banner
banner