Arnór Siggeirsson í Sandgerði (Staðfest)
Reynir Sandgerði hefur staðfest nýjan leikmann fyrir komandi sumar sem á að hjálpa Sandgerðingum eftir fall niður í 3. deild.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25107 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Reynir Sandgerði hefur staðfest nýjan leikmann fyrir komandi sumar sem á að hjálpa Sandgerðingum eftir fall niður í 3. deild.
Björgvin Brimi Andrésson er kominn aftur heim í Gróttu eftir fjögur ár hjá KR. Hann er fæddur á Seltjarnarnesi og æfði með Gróttu allt þar til komið var í 4. flokk, þegar hann skipti yfir til KR í Vesturbænum.
Hákon Atli Aðalsteinsson er kominn aftur til Dalvíkur/Reynis og mun leika fyrir liðið á láni í ár.
Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar. Það hafa verið annasamir dagar hjá Víkingum sem voru að keppa í Sambansdeildinni og á sama tíma að selja og kaupa leikmenn.
Þorleifur Úlfarsson hefur rift samningi sínum við Debrecen í Ungverjalandi og er því laus allra mála. Þorleifur samdi við félagið fyrir um ári síðan en náði ekki að stimpla sig almennilega inn eftir komuna frá Houston Dynamo og kom einungis við sögu í þremur deildarleikjum. Þorleifur hefur glímt við meiðsli stóran hluta af veru sinni í Ungverjalandi og er vonandi að hann fari að ná sér af þeim.
Hollenska félagið PSV Eindhoven er búið að staðfesta komu sóknarleikmannsins Lucas Pérez til félagsins á frjálsri sölu.
Rangers hefur ákveðið að reka Philippe Clement úr þjálfarasætinu eftir 16 mánuði við stjórnvölinn. Gengi félagsins hefur ekki verið nægilega gott heimafyrir þrátt fyrir flottan árangur í Evrópudeildinni.
Robin van Persie var í morgun tilkynntur sem nýr stjóri Feyenoord. Hann kemur til félagsins frá Heerenveen. Markavélin Van Persie er 41 árs Hollendingur sem hóf leikmannaferilinn hjá Feyenoord og lauk honum þar einnig. Eftir veruna hjá Feyeenoord á árunum 1999-2004 fór hann til Arsenal, svo til Manchester United og loks til Fenerbahce áður en hann sneri aftur til Hollands. Hans fyrstu þjálfarastörf voru hjá yngri flokkum Feyenoord og sem aðstoðarmaður Dick Advocaat í þjálfateymi Feyenoord. Hans fyrsta aðalþjálfarastarf var hjá Heerenveen en hann er nú kominn til Feyenoord og skrifar undir til 2027. Hann tekur við Dananum Brian Priske sem var látinn fara nýlega. Rene Hake, sem hefur verið í þjálfarateymi Erik ten Haag, aðstoðar Van Persie hjá Feyenoord. Feyenoord endaði í 2. sæti hollensku deildarinnar í fyrra undir stjórn Arne Slot. Liðið er í dag í 3. sæti ideildarinnar, ellefu stigum á eftir Ajax og níu stigum á eftir PSV. Framundan er barátta í deildinni og einvígi gegn Inter í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
FH hefur fengið góðan styrk fyrir komandi tímabil en Íris Una Þórðardóttir er komin til félagsins frá Þrótti.
Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham hefur lánað brasilíska miðvörðinn Luizao til pólska félagsins Pogon Szczecin.
Selfoss hefur samið við spænska leikmanninn Selenu Salas en hún kemur frá FHL.
Þorlákur Breki Baxter er genginn í raðir ÍBV á láni frá Stjörnunni en þetta kemur fram á vef KSÍ.
Slóvakíski markvörðurinn Martin Dúbravka er búinn að gera nýjan samning við Newcastle United, sem gildir út næstu leiktíð.
Arnór Smárason er hættur sem yfirmaður fótboltamála hjá Val eftir að hafa tekið ákvörðun ásamt fjölskyldu sinni að flytja aftur út til Svíþjóðar.
Fram hefur verið að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna og er Halla Helgadóttir komin til félagsins úr röðum FH.
Hvíti Riddarinn tilkynnti í dag að nýtt teymi væri tekið við þjálfun liðsins. Ásbjörn Jónsson verður aðalþjálfari og Vigfús Geir Júlíusson verður honum til halds og trausts. Ásbjörn tekur við af Ásgeiri Frank Ásgeirssyni sem hélt í Fjölni í vetur og er þar aðstoðarþjálfari. Hvíti Riddarinn er í 3. deild, liðið endaði í 6. sæti deildarinnar í fyrra. Félagið er venslafélag Aftureldingar.
Tómas Orri Róbertsson er búinn að skrifa undir samning við FH og mun því spila í Hafnarfirði í sumar eftir að hafa alist upp í Kópavogi með Breiðabliki.
FHL heldur áfram að styrkja sig fyrir átökin í Bestu deild kvenna næsta sumar. Félagið hefur samið við þriðja erlenda leikmanninn í þessari viku.
Atli Sigurjónsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við KR og er því samningsbundinn út tímabilið 2026. Fyrri samningur hans rann út eftir síðasta tímabil og hefur hann því verið samningslaus í þrjá mánuði. Atli er örvfættur kantmaður sem fæddur er árið 1991. Hann er uppalinn hjá Þór og hefur einnig leikið með KR og Breiðabliki á sínum ferli.
Arnór Sigurðsson var í dag tilkynntur sem nýr leikmaður sænsku meistaranna í Malmö. Hann kemur á frjálsri sölu eftir að samningi hans við Blackburn var rift á dögunum. Hann skrifar undir samning sem gildir út næstu þrjú tímabil og verður í treyju númer 8. Skagamaðurinn er 25 ára gamall og á að baki 34 landsleiki. Hann hefur verið talsvert frá síðasta hálfa árið, bæði vegna meiðsla og veikinda en er að snúa aftur á völlinn. Í 41 leik með Blackburn skoraði Arnór átta mörk og lagði upp fimm.