Ísfold Marý í Víking (Staðfest)
Víkingur R. hefur styrkt sig fyrir komandi átök í Bestu deildinni en Ísfold Marý Sigtryggsdóttir er komin til félagsins frá Þór/KA.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24403 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Víkingur R. hefur styrkt sig fyrir komandi átök í Bestu deildinni en Ísfold Marý Sigtryggsdóttir er komin til félagsins frá Þór/KA.
Franski miðvörðurinn Axel Disasi hefur samið við Aston Villa út tímabilið en hann kemur á láni frá Chelsea. Skiptin voru tilkynnt seint í kvöld.
Nottingham Forest fékk tvo nýja leikmenn til félagsins fyrir gluggalok en þeir Tyler Bindon og Joel Ndala eru komnir til félagsins og þá voru þeir Lewis O'Brien og Emmanuel Dennis sendir á lán í B-deildina.
Argentínski miðjumaðurinn Carlos Alcaraz er kominn til Everton á láni frá Flamengo út tímabilið.
Félagaskiptaglugginn lokaði klukkan 23 en tilkynningarnar halda áfram að hrannast inn þar sem félög gátu fengið aukinn tíma til að ganga frá pappírsvinnu. Wolves tókst meðal annars að landa miðverðinum Nasser Djiga frá Rauðu stjörnunni í Serbíu.
Crystal Palace tókst að ganga frá lánssamningi við Chelsea um Ben Chilwell áður en glugginn lokaði klukkan 23:00 í kvöld.
Tottenham hefur loks tilkynnt komu franska framherjans Mathys Tel frá Bayern München í Þýskalandi. Hann kemur á láni út tímabilið og er kaupákvæði í samningnum.
Englandsmeistarar Manchester City hafa landað spænska miðjumanninum Nico Gonzalez frá portúgalska félaginu Porto fyrir 50 milljónir punda.
Enska úrvalsdeildarfélagið Bournemouth hefur staðfest kaupin á franska sóknarmanninum El Junior Kroupi en hann kemur frá B-deildarliði Lorient.
Stjórnarmenn ítalska félagsins AC Milan hafa heldur betur látið að sér kveða á markaðnum síðustu daga en félagið hefur nú náð samkomulagi um að fá ítalska leikmanninn Riccardo Sottil á láni frá Fiorentina.
Enski varnarmaðurinn Rob Holding tekur toppbaráttuslaginn með Sheffield United í ensku B-deildinni en hann kemur til félagsins á láni frá Crystal Palace.
Nýliðar Ipswich Town staðfestu í kvöld komu enska markvarðarins Alex Palmar frá WBA. Hann mun líklega koma beint inn í byrjunarlið Ipswich.
Ítalska félagið Juventus hefur hreppt enska varnarmanninn Lloyd Kelly á láni frá Newcastle United út leiktíðina, en skiptin verða gerð varanleg eftir tímabilið.
Enski miðjumaðurinn Carney Chukwuemeka er kominn til Borussia Dortmund á láni frá Chelsea. Þýska félagið greinir frá skiptunum á samfélagsmiðlum í kvöld.
Enska B-deildarfélagið Middlesbrough tilkynnti í kvöld um komu nígeríska framherjans Kelechi Iheanacho en hann kemur á láni frá spænska félaginu Sevilla.
Spænski miðjumaðurinn Marco Asensio er kominn til Aston Villa á láni frá Paris Saint-Germain út tímabilið.
Þýska félagið Borussia Dortmund hefur fest kaup á þýska markverðinum Diant Ramaj frá Ajax og lánað hann til danska félagsins FCK út tímabilið.
Framarinn Markús Páll Ellertsson er genginn til liðs við Triestina í C-deildinni á Ítalíu en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins á samfélagsmiðlum.
Galatasaray rifti lánssamningi Nicolo Zaniolo við Atalanta og hefur lánað hann til Fiorentina. Fiorentina borgar 3,2 milljónir evra fyrir að fá ítalska landsliðsmanninn á láni og er með klásúlu um að geta keypt hann fyrir 15,5 milljónir evra.
AC Milan hefur opinberlega fengið mexíkóska landsliðsmanninn Santiago Gimenez frá Feyenoord í Hollandi. Þessi 23 ára leikmaður hefur skorað 45 deildarmörk í 73 leikjum í Hollandi, AC Milan borgar 32 milljónir evra fyrir Gimenez, heildarpakkinn gæti farið í 35 milljónir.