Inter lánar Buchanan til Villarreal (Staðfest)
Kanadíski leikmaðurinn Tajon Buchanan er mættur til Villarreal á láni frá Inter út tímabilið.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24403 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Kanadíski leikmaðurinn Tajon Buchanan er mættur til Villarreal á láni frá Inter út tímabilið.
Manchester United hefur krækt í enska miðvörðinn Ayden Heaven en hann kemur til félagsins frá erkifjendum þeirra í Arsenal.
Marseille hefur fest kaup á alsírska sóknarmanninum Amine Gouiri en hann kemur frá Rennes fyrir 22 milljónir evra.
Hollenski markvörðurinn Guy Smit er genginn í raðir Vestra á Ísafirði en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins í dag.
Eiran Cashin er genginn til liðs við Brighton frá Derby en hann skrifar undir samning til ársins 2030. Brighton borgar 9 milljónir punda fyrir hann.
Finnur Orri Margeirsson tilkynnti í gær að hann hafi lagt skóna á hilluna eftir 17 ár í efstu deild. Finnur Orri er 33 ára gamall en hann er uppalinn í Breiðabliki. Hann lék sinn fyrsta leik árið 2008 en hann lék alls 439 leiki og skoraði tíu mörk. Hann lék einnig með KR og FH á ferlinum. Hann varð Íslandsmeistari með Breiðabliki 2010 en hann varð bikarmeistari árið áður, þá varð hann Íslandsmeistari með KR árið 2019. Hann lauk ferlinum í Hafnarfirðinum en hann lék þar frá 2022.
Völsungur er á fullu að bæta við sig leikmönnum fyrir átökin í Lengjudeildinni næsta sumar en liðið verður nýliði eftir að hafa komist upp úr 2. deildinni síðasta sumar. Félagið hefur sótt tvo unga leikmenn á láni frá Akureyri.
Stefan Bajcetic, miðjumaður Liverpool, er genginn til liðs við spænska liðið Las Palmas á láni út tímabilið.
Jhon Duran er genginn til liðs við Al-Nassr frá Aston Villa. Al-Nassr greiðir rúmlega 64 milljónir punda fyrir hann. Hann er samningsbundinn til ársins 2030. Þess kólumbíski framherji gekk til liðs við Villa frá Chicago Fire árið 2023 fyrir um 17 milljónir punda.
Brasilíski sóknarmaðurinn Neymar er mættur aftur til Santos í Brasilíu eftir tólf ár í burtu frá félaginu. Neymar kemur frá Al-Hilal í Sádi-Arabíu. Þegar Neymar var síðast hjá Santos vissi allur heimurinn að þarna væri stjarna á ferðinni og hann átti eftir að eiga farsælan feril. Hann hefur glímt við meiðsli síðustu ár og náði ekki að spila mikið með Al-Hilal. Þar á undan var hann hjá PSG og Barcelona. Neymar er 32 ára og á að baki 128 landsleiki fyrir Brasilíu og í þeim hefur hann skorað 79 mörk. Hann vann Ólympíuleikana með landsliðinu árið 2016. Hann vann spænsku deildina tvisvar með Barcelona, Meistaradeildina einu sinni, bikarinn þrisvar og HM félagsliða einu sinni. Hjá PSG vann hann frönsku deildina fimm sinnum og bikarinn þrisvar. Al-Hilal varð svo meistari á síðasta tímabili en eins og fyrr segir átti Neymr ekki stóran þátt í því.
Íslandsmeistarar Breiðablik hafa selt Vigdísi Lilju Kristjánsdóttur til belgísku meistaranna í Anderlecht. Hún er komin með félagaskipti til Belgíu og skrifar undir samning sem gildir fram á sumarið 2027. Vigdís, sem er uppalin í Kópavogi, er fædd árið 2005 og hefur spilað með meistaraflokki Breiðabliks frá árinu 2020. Vigdís á að baki fjölda leikja með U-16, U-17, U-19 og U-23 ára landsliðum Íslands. Framherjinn skoraði ellefu mörk í 23 leikjum í Bestu deildinni í fyrra þegar Breiðablik varð Íslandsmeistari. Hún varð einnig Íslandsmeistari 2020 og bikarmeistari 2021.
Pétur Bjarnason verður ekki með Vestra á komandi tímabili. Þetta staðfestir hann við Fótbolta.net. Fótbolti.net fékk ábendingu um að skórnir gætu verið komnir upp í hillu hjá Pétri. Pétur var spurður út í það og sagði að það væri ekki í plönum hans eins og er að spila fótbolta í sumar. Pétur er 28 ára framherji sem uppalinn er hjá Vestra (BÍ/Bolungarvík) og sneri aftur heim í Vestra á síðasta tímabili eftir eitt tímabil með Fylki.
Kristian Nökkvi Hlynsson er genginn í raðir Sparta Rotterdam á láni frá Ajax. Lánssamningurinn gildir út tímabilið. Kristian er 21 árs sóknarsinnaður miðjumaður. Kristian hefur verið hjá Ajax í fimm ár og spilaði 34 leiki með liðinu á síðasta tímabili og skoraði sjö mörk. Tækifærin hafa verið af skornum skammti á þessu tímabili og meiðsli hafa einnig sett strik í reikninginn. Kristian vonast til þess að fá að spila meira hjá Sparta. Hjá Sparta hittir hann fyrir þjálfarann Maurice Steijn sem var þjálfari Kristians hjá Ajax í byrjun síðasta tímabils.
Málfíður Anna Eiríksdóttir hefur fengið félagaskipti í danska félagið B93 og mun spila með liðinu út tímabilið í Danmörku. Hún gerði slíkt hið sama í fyrra en þá skipti hún yfir í Val áður en glugginn á Íslandi lokaði í apríl. Valsarinn er að klára meistaranám í gervigreind við Tækniháskólann í Kaupmannahöfn og ætlar að spila meðfram því.
Roma hefur lánað varnarmanninn Mario Hermoso til Bayer Leverkusen út tímabilið. Engin sérstök ákvæði eru um framtíðarkaup. Þýskalandsmeistararnir staðfestu komu Hermoso í morgun.
Genoa hefur tryggt sér íslenska landsliðsmanninn Mikael Egil Ellertsson. Hann mun þó ekki ganga í raðir félagsins fyrr en í sumar, hann klárar tímabilið á láni hjá Venezia þaðan sem hann er keyptur. Genoa borgar um 3,5 milljónir evra fyrir Mikael sem gerir þetta að einni stærstu sölu í sögu Venezia. Mikael gekk til liðs við Venezia frá Spezia í janúar árið 2023. Hann hefur leikið 70 leiki og skorað sex mörk fyrir félagið. Liðið er í 19. sæti Serie A með 16 stig, fjórum stigum frá öruggu sæti. Genoa er í 12. sæti deildarinnar en liðið hefur verið á uppleið síðan Arsenal goðsögnin Patrick Vieira tók við liðinu í nóvember en þá var liðið í 17. sæti.
Höttur/Huginn er búinn að krækja í spænska markvörðinn Gerard Tomás Iborra frá Hamri, en hann er 26 ára gamall og stóð sig frábærlega með Hvergerðingum í fyrra.
Embla Katrín Oddsteinsdóttir er gengin til liðs við Fylki og gerir hún tveggja ára samning við Árbæinga.
Sheffield United hefur verið að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir komandi átök í titilbaráttu Championship deildarinnar.
Stokkseyringar ætla sér stóra hluti á komandi leiktíð í 5. deildinni og eru búnir að styrkja sig með öflugum leikmönnum.