Fotbolti.net
31.01.25 - 18:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Jhon Duran kominn til Al-Nassr (Staðfest)

Jhon Duran kominn til Al-Nassr (Staðfest)
Canon

Mynd: Al-Nassr

Jhon Duran er genginn til liðs við Al-Nassr frá Aston Villa. Al-Nassr greiðir rúmlega 64 milljónir punda fyrir hann. Hann er samningsbundinn til ársins 2030.

Þess kólumbíski framherji gekk til liðs við Villa frá Chicago Fire árið 2023 fyrir um 17 milljónir punda.
Duran er 21 árs gamall framherji en hann spilaði 78 leiki fyrir Aston Villa og skooraði 20 mörk. Hann var aðallega í því hlutverki að koma inn á fyrir Ollie Watkins.

Al-Nassr setti sér háleit markmið þegar félagið nældi í Cristiano Ronaldo og Sadio Mane árið 2023 en liðinu hefur ekki tekist að vinna deildartitilinn. Liðið er í 3. sæti sem stendur átta stigum frá toppliði Al-Hilal.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.