Argentískt ungstirni til Leverkusen (Staðfest)
Hinn 18 ára gamli Alejo Sarco er genginn til liðs við Leverkusen frá Velez í Argentínu.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24405 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Hinn 18 ára gamli Alejo Sarco er genginn til liðs við Leverkusen frá Velez í Argentínu.
Gift Orban er genginn til liðs við Hoffenheim frá Lyon en þýska félagið borgar 12 milljónir evra fyrir hann.
Orri Sigurjónsson hefur skrifað undir samning við Þór og mun leika með liðinu í Lengjudeildinni næsta sumar.
Berglind Björg Þorvalsdóttir er gengin til liðs við Breiðablik. Berglind lék með yngri flokkum félagsins een hún spilaði sína fyrstu leiki fyrri Blika árið 2007. Hún hefur leikið 224 leiki fyrir félagið og skorað í þeim 174 mörk.
Ægir krækti á dögunum í sóknarmanninn Jordan Adeyemo en hann kemur frá Írlandi.
Fílabeinsstrendingurinn Seko Fofana hefur samið við Rennes í Frakklandi en hann kemur til félagsins frá Al Nassr í Sádi-Arabíu.
Enska úrvalsdeildarfélagið Southampton hefur lánað Ronnie Edwards til QPR út tímabilið.
Enska B-deildarfélagið Stoke City hefur ráðið enska þjálfarann Mark Robins en hann gerir þriggja og hálfs árs samning við félagið.
Knattspyrnudeild Völsungs hefur skotið fyrstu nýársbombunni með því að kynna Elvar Baldvinsson sem kemur aftur til félagsins frá Vestra.
Framarar hafa styrkt hópinn fyrir átökin í Bestu deildinni á næsta tímabili en hin 23 ára gamla Lily Farkas er gengin í raðir félagsins frá danska félaginu Fortuna Hjorring.
Eyjamaðurinn Þórarinn Ingi Valdimarsson hefur lagt skóna á hilluna en hann greinir frá þessu á Facebook.
Stjarnan hefur náð samkomulagi við sænska félagið Mjällby um kaup á Guðmundi Baldvin Nökkvasyni en þetta kemur fram í tilkynningu Stjörnunnar í dag.
Wayne Rooney er hættur með enska B-deildarliðið Plymouth Argyle en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins í dag.
Hinn 43 ára gamli Alex Neil er nýr stjóri Millwall í Championship-deildinni og hefur gert langtímasamning við félagið. Hann var í stúkunni þegar Millwall gerði markalaust jafntefli við Coventry í gær en Millwall er í þrettánda sæti. Neil kom Norwich upp í ensku úrvalsdeildina 2015 og tekur nú við Millwall sem lét Neil Harris fara fyrr í þessum mánuði. Alex Neil hefur meðal annars stýrt Preston, Sunderland og Stoke. Hann var rekinn frá Stoke fyrir um ári síðan.
AC Milan hefur staðfest ráðningu á Sergio Conceicao; hann er nýr stjóri liðsins. Hann tekur við starfinu af landa sínum, Paulo Fonseca, sem var vikið úr starfi í gær. Fonseca var rekinn eftir 1-1 jafntefli gegn Roma í gær en fyrir leikinn var talið um að hann þyrfti sigur til að halda starfinu. Hann var aðeins sex mánuði í starfinu.
Axel Freyr Ívarsson hefur gert þriggja ára samning við Fjölni í Lengjudeildinni. <i>„Axel sem er uppalinn á Skaganum er afar kraftmikill leikmaður sem skoraði 9 mörk og átti 12 stoðsetningar með liði Kára á liðnu tímabili,"</i> segir í tilkynningu Fjölnis. <i>„Við hjá Fjölni erum afar ánægð með að fá Axel í okkar lið og óskum honum alls hins besta."</i> Axel, sem er nítján ára, hefur leikið með Kára á Akranesi í 3. deildinni undanfarin ár.
Tómas Bjartur Björnsson er genginn til liðs við Hamar og mun leika með liðinu í 4. deild í sumar.
Auðunn Ingi Valtýsson er genginn til liðs við Dalvík/Reyni frá Þór en hann gerir tveggja ára samning við félagið. Auðunn er markvörður fæddur árið 2002 en hann lék á láni hjá Dalvík/Reyni í 2. deild sumarið 2023.
Greint var frá því í gær að Árni Salvar Heimisson væri búinn að gera lánssamning við Grindavík til að spila í Lengjudeildinni næsta sumar. Hann er þó ekki eini leikmaður ÍA sem er lánaður til Grindavíkur fyrir næstu leiktíð því Breki Þór Hermannsson fer með honum.
Kantmaðurinn knái Yannick Bolasie er búinn að gera eins árs samning við brasilíska stórveldið Cruzeiro.