Rúnar Páll tekur við Gróttu (Staðfest)
Rúnar Páll Sigmundsson er samkvæmt heimildum Fótbolta.net að taka við Gróttu. Mun hann taka við og stýra liðinu í 2. deild næsta sumar en Grótta féll úr Lengjudeildinni fyrir stuttu.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24406 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Rúnar Páll Sigmundsson er samkvæmt heimildum Fótbolta.net að taka við Gróttu. Mun hann taka við og stýra liðinu í 2. deild næsta sumar en Grótta féll úr Lengjudeildinni fyrir stuttu.
Birna Jóhannsdóttir er komin aftur til Stjörnunnar eftir rúmlega tveggja ára fjarveru.
Haukur Darri Pálsson er genginn til liðs við Hauka og gerir hann tveggja ára samning við félagið sem gildir út keppnistímabilið 2026.
Atli Hrafn Andrason er farinn frá HK á frjálsri sölu eftir tvö ár í Kópavogi.
Björn Sigurbjörnsson hefur verið ráðinn inn sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Víkingi R. sem leikur í Bestu deildinni.
Unnar Jóhannsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla hjá Hamri í Hveragerði fyrir komandi tímabil. Unnar þekkir félagið vel en hann var áður yfirþjálfari yngri flokka Hamars og þjálfaði hann meistaraflokk félagsins sumarið 2021.
Guðmundur Axel Hilmarsson hefur yfirgefið herbúðir Þróttara en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. <i>„Knattspyrnudeild Þróttar og Guðmundur Axel Hilmarsson hafa komist að sameinginlegri niðurstöðu um að loka samningi Guðmundar við félagið frá og með þessu hausti,"</I> segir í tilkynningunni.
Amelía Rún Fjeldsted er aftur gengin í raðir Keflavíkur, uppeldisfélags síns. <i>„Eftir að hafa söðlað um og leikið með Fylki er Amelía komin heim á ný, en hún á að baki um 90 leiki fyrir Keflavík þrátt fyrir að vera aðeins tvítug,"</I> segir í tilkynningu Keflavíkur.
Stjarnan tilkynnti í gærkvöldi að félagið hefði náð samkomulagi við Veru Varis um að hún myndi leika með liðinu á komandi tímabili. Vera er þrítugur finnskur markmaður sem kemur til Stjörnunnar frá Keflavík þar sem hún lék síðustu tvö tímabil og stóð sig vel. Fótbolti.net sagði á dögunum frá áhuga Stjörnunnar á tveimur leikmönnum Keflavíkur og var Vera önnur þeirra. Erin McLeod hefur varið mark Stjörnunnar síðustu tvö tímabil en hún hélt til Kanada í haust. Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving lék þá fimm leiki með Stjörnunni í sumar en hún er samningsbundin félaginu út næsta tímabil. Stjarnan endaði í 7. sæti Bestu deildarinnar í sumar og Jóhannes Karl Sigursteinsson er þjálfari liðsins. <b>Tilkynning Stjörnunnar</b> Samningar hafa náðst við Veru Varis að ganga til liðs við Stjörnuna, en Vera er markmaður sem kemur frá Keflavík þar sem hún hefur spilað seinustu tvö tímabil við góðan orðstír. Við bjóðum Veru innilega velkomna í félagið og hlökkum til að sjá hana í Stjörnubúningnum á komandi tímabili!
Hollenski bakvörðurinn Patrick van Aanholt er búinn að skrifa undir samning við Sparta Rotterdam í heimalandinu, eftir að hafa leikið á láni hjá PSV Eindhoven á síðustu leiktíð.
Kristófer Ingi Kristinsson hefur framlengt samning sinn við Íslandsmeistaralið Breiðabliks út árið 2026. Fyrri samningur hans við félagið runnið út núna um áramótin. Kristófer kom í Breiðablik í ágúst í fyrra eftir að hafa leikið með VVV-Venlo í hollensku B-deildinni tímabilið á undan. Hann er uppalinn hjá Stjörnunni og hafði verið úti í atvinnumennsku hjá Willem II, Grenoble, SönderjyskE og Jong PSV áður en hann hélt heim til Íslands.
Grótta tilkynnti í dag að Dominic Ankers hefði verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna. Hann tekur við af Matthíasi Guðmundssyni sem keyptur var til Vals fyrr í haust. Dom er 29 ára Englendingur sem hefur verið hjá Gróttu síðan hann kom til félagsins árið 2021. Hann hefur verið aðstoðarþjálfari í báðum meistaraflokkum og einnit þjálfað 2. og 5. flokk karla hjá félaginu.
Manchester United hefur staðfest að Ruud van Nistelrooy verði ekki áfram hjá félaginu. Van Nistelrooy hefur verið í þjálfarateymi United á yfirstandandi tímabili og stýrt liðinu til bráðabirgða eftir að Erik ten Hag var rekinn. Undir hans stjórn vann Man Utd þrjá leiki, gerði eitt jafntefli og tapaði engum.
Njarðvík tilkynnti í dag að Valdimar Jóhannsson væri búinn að gera tveggja ára samning við félagið. Valdimar er kantmaður sem kemur til Njarðvíkur frá uppeldisfélagi sínu Selfossi. Valdimar er fjölhæfur leikmaður, getur leyst nokkrar stöður framarlega á vellinum.
Bakvörðurinn Arnór Ingi Kristinsson er genginn í raðir ÍBV frá Leikni en hann fetar þar með í fótspor föður síns. Þetta kemur fram í tilkynningu Eyjamanna í dag.
Hermann Hreiðarsson hefur verið kynntur sem nýr þjálfari HK í Lengjudeild karla. Hann skrifaði undir þriggja ára samning. <i>„Velkominn í hlýjuna“</i> segja HK-ingar í tilkynningu sinni en Hermann lét af störfum sem þjálfrari ÍBV eftir tímabilið þar sem hann og fjölskylda hans fluttu á höfuðborgarsvæðið. <i>„Það er okkur mikið ánægjuefni að fá Hemma til starfa og bindum við miklar vonir við komu hans hingað í HK. Hemmi hefur mikla reynslu úr heimi fótboltans og verður spennandi að sjá hann stýra meistaraflokki karla næstu þrjú árin ásamt því að vinna með þeim fjölmörgu ungu og efnilegu leikmönnum sem eru og hafa verið að banka á dyr meistaraflokksins sl. misserin,"</i> segir Hjörtur Þór Steindórsson, formaður fótboltadeildar HK, í tilkynningunni.
<p>Katrín Erla Clausen er gengin til liðs við Fram frá Stjörnunni en hún gerir tveggja ára samning við félagið.</p>
Valgeir Valgeirsson er að yfirgefa Örebro eftir tvö og hálft tímabil hjá sænska félaginu. Valgeir fór til Svíþjóðar sumarið 2022. Samningur hans við félagið er að renna út og mun hann ekki framlengja. Valgeir er 22 ára fjölhæfur leikmaður sem er uppalinn hjá HK. Hann hefur verið U21 landsliðsmaður undanfarin ár og lék alls ellefu leiki í þeim aldursflokki og alls 35 fyrir yngri landsliðin. Hann hefur mest spilað sem bakvörður síðustu ár. Hann var í íslenska slúðurpakkanum orðaður við nokkur félög í Bestu deildinni. Hann var orðaður við Víking, Breiðablik og Val.
Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir gekk nýlega í raðir FC Kaupmannahafnar í Danmörku. Hún samdi við AGF snemma á árinu en var óheppin með meiðsli þar og samningur hennar rann út í sumar. Hún flutti til Danmerkur eftir tímabilið 2023 með FH þar sem kærasti hennar er í meistaranámi og þau ákváðu að flytja til Köben í haust. Vinstri bakvörðurinn byrjaði að æfa með FCK í síðasta mánuði og lék sinn fyrsta leik með liðinu um liðna helgi. FCK vann sigur í toppbaráttuslag gegn Sundby um liðna helgi, sigurmarkið kom í uppbótartíma og lék Sunneva allan leikinn.
AGF hefur tilkynnt að Ragnar Sigurðsson sé að taka við sem þjálfari U17 ára liðs danska félagsins. Ragnar hefur störf á nýju ári. Fótbolti.net fjallaði um viðræður milli aðilanna í gær og er nú búið að tilkynna að ráðningin sé frágengin. Ragnar tekur við af Niklas Backman sem verður 'transition' þjálfari hjá félaginu, aðstoðar efnilega leikmenn í að taka skrefið upp í aðalliðið. Backman er fyrrum sænskur landsliðsmaður og var á sínum tíma fyrirliði AGF.