Fotbolti.net
13.11.24 - 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Unnar Jóhanns aftur ráðinn þjálfari Hamars (Staðfest)

Unnar hér með Tómasi Inga Tómassyni, framkvæmdastjóra Hamars.

Unnar hér með Tómasi Inga Tómassyni, framkvæmdastjóra Hamars.

Canon

Mynd: Hamar

Unnar Jóhannsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla hjá Hamri í Hveragerði fyrir komandi tímabil.

Unnar þekkir félagið vel en hann var áður yfirþjálfari yngri flokka Hamars og þjálfaði hann meistaraflokk félagsins sumarið 2021.
Unnar tekur við Hamri (Staðfest)
TENGT EFNI

Unnar tekur við Hamri (Staðfest)

Unnar skrifaði undir tveggja ára samning og hefur hann þegar hafið störf.

„Það er okkur mikið ánægjuefni að fá Unnar til starfa og bindum við miklar vonir við komu hans hingað í Hamar. Það verður virkilega spennandi að sjá hann stýra meistaraflokki karla og þeim fjölmörgu ungu og efnilegu leikmönnum sem hafa verið að stíga sín fyrstu skref með meistaraflokki. Framtíðin er björt og við erum virkilega spennt fyrir framhaldinu," segir Eydís Valgerður Valgarðsdóttir, formaður knattspyrnudeildar Hamars.

Hamar hafnaði í fjórða sæti 4. deildar á síðasta tímabili en Yngvi Magnús Borgþórsson stýrð liðinu síðasta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.