Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24407 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR08.10.2024, 13:02

Aron Dagur í Stjörnuna (Staðfest)

Stjarnan tilkynnti í rétt í þessu að Aron Dagur Birnuson væri genginn í raðir félagsins. Hann er annar leikmaðurinn sem kemur til félagsins á stuttum tíma, sá fyrsti var Samúel Kári Friðjónsson. Aron Dagur fær leikheimild með liðinu eftir að tímabilinu 2024 lýkur. Aron Dagur kemur frá Grindavík þar sem hann hefur spilað undanfarin ár. Hann var með skráðan samning við Grindavík út tímabilið 2025. <i>„Aron Dagur, sem er ungur og efnilegur markvörður, kemur inn með mikla hæfileika. Hann hefur sýnt frábæra frammistöðu undanfarin ár í Grindavík og verður einstaklega gaman að sjá hann á Samsungvelli næstu árin!"</I> segir í tilkynningu Stjörnunnar. Aron Dagur skrifar undir þriggja ára samning í Garðabænum. Aron Dagur er 25 ára og er uppalinn í KA. Hann spilaði sína fyrstu meistaraflokksleiki tímabilið 2017 með KA, lék á láni með Völsungi 2018, varði mark KA í samtals 17 deildarleikjum tímabilin 2019-2020 og fór svo til Grindavíkur þar sem hann hefur verið aðalmarkvörður síðustu fjögur tímabilin.

FRÉTTIR06.10.2024, 20:10

Rúnar búinn að stýra sínum síðasta leik hjá Fylki (Staðfest)

<p>Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, er búinn að stýra sínum síðasta leik hjá Fylki. Rúnar fékk beint rautt spjald í dag eftir jöfnunarmark HK í blálokin og fer því í tveggja leikja bann þar sem þetta er annað rauða spjaldið hans á leiktíðinni. Það eru tveir leikir eftir af Bestu deildinni og Rúnar Páll mun ekki stýra Fylki í þeim leikjum.</p><p>Rúnar greindi frá því í viðtali við Fótbolti.net eftir leik að hann muni ekki heldur halda áfram með liðið eftir leiktíðina. Því var þetta hans seinasti leikur með Fylkisliðinu.</p>

FRÉTTIR04.10.2024, 16:32

Júlíus og Halldór orðnir leikmenn KR (Staðfest)

KR hefur fengið tvo unga leikmenn frá Fjölni, það eru miðvörðurinn Júlíus Mar Júlíusson og markvörðurinn Halldór Snær Georgsson. Báðir eru 2004 módel og hafa skrifað undir samninga til 2027. <i>„Júlíus Mar er kraftmikill og leikinn hafsent sem byrjaði ferilinn sinn í Vænjum Júpiters og hefur verið lykilmaður í liði Fjölnis undanfarin ár. Júlíus hefur spilað 83 leiki fyrir Fjölni og á 3 leiki með U19 landsliði Íslands. Júlíus var valinn í lið ársins í Lengjudeildinni fyrir góða frammistöðu í sumar,"</I> segir í tilkynningu KR.

FRÉTTIR04.10.2024, 12:07

Samúel Kári skrifar undir fjögurra ára samning við Stjörnuna (Staðfest)

Stjarnan tilkynnti rétt í þessu að Samúel Kári Friðjónsson væri búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við félagið. Hann fær keppnisleyfi með liðinu eftir tímabilið. <i>„Samúel Kári er kraftmikill miðjumaður sem hefur leikið með bæði íslenska landsliðinu og sterkum erlendum félögum. Með reynslu sinni og hæfileikum er Samúel lykilleikmaður á vellinum og verður frábært að sjá hann klæðast bláu treyjunni næstu árin!"</I> segir í tilkynningu Stjörnunnar.

FRÉTTIR03.10.2024, 20:21

Óli Hrannar áfram með Leikni (Staðfest)

Ólafur Hrannar Kristjánsson skrifaði á dögunum undir samning við Leikni um að halda áfram þjálfun liðsins í Lengjudeildinni á næsta tímabili. Þá verður Nemanja Pjevic áfram aðstoðarmaður hans.

FRÉTTIR02.10.2024, 18:25

Birkir Heimis kominn aftur í Val (Staðfest)

Valur hefur keypt miðjumanninn Birki Heimisson aftur til baka frá Þór. Birkir var keyptur til uppeldisfélagsins Þórs frá Val síðasta vetur og var besti leikmaður liðsins í Lengjudeildinni í sumar, skoraði fimm mörk í 17 deildarleikjum. Hann hafði leikið með Val 2020-2023.

FRÉTTIR02.10.2024, 15:01

Óliver Dagur í KR (Staðfest)

Óliver Dagur Thorlacius er genginn í raðir KR. Félagið greindi frá tíðindinum í dag en Óliver skrifar undir þriggja ára samning við félagið. Óliver er miðjumaður sem er uppalinn í KR en hefur spilað með Gróttu og svo Fjölni síðustu ár. Hann er fæddur árið 1999 og lék á sínum tíma tíu leiki með yngri landsliðum Íslans.

FRÉTTIR02.10.2024, 13:25

Wojciech Szczesny í Barcelona (Staðfest)

Pólski markvörðurinn Wojciech Szczesny er formlega genginn í raðir Barcelona. Hann skrifar undir samning sem gildir út yfirstandandi keppnistímabil.

FRÉTTIR02.10.2024, 11:58

Úlfur áfram hjá Fjölni (Staðfest) - Gegnir lykilhlutverki í vegferðinni

Fjölnir tilkynnti rétt í þessu að félagið hefði náð samkomulagi við Úlf Arnar Jökulsson um að hann verði áfram þjálfari liðsins. Nýr samningur gildir til tveggja ára. Úlfur var á sínu þriðja tímabili með liðið í sumar og endaði Fjölnir í 3. sæti Lengjudeildarinnar eftir að hafa verið spáð talsvert verra gengi. Liðið var lengi vel í efsta sæti deildarinnar en tókst ekki að ná í úrslit í mörgum leikjum í röð þegar leið á tímabilið. Liðið fór í umspil um sæti í Bestu deildinni en féll úr leik í undanúrslitum fyrir Aftureldingu sem fór að lokum upp með ÍBV.

FRÉTTIR01.10.2024, 10:46

Þorri Stefán skiptir alfarið í Fram (Staðfest)

Þorri Stefán Þorbjörnsson er genginn alfarið í raðir Fram frá Lyngby og skrifar hann undir þriggja ára samning í Úlfarsárdal. Hann er því samningsbundinn út tímabilið 2027. Þorri hefur leikið á láni með Fram á tímabilinu og sagði frá því fyrr á þessu ári að hans vilji væri að yfirgefa Lyngby. Þorri er 18 ára, U19 landsliðsmaður, sem samdi við Lyngby síðasta sumar. Hann er uppalinn hjá Fram en hélt í FH fyrir tímabilið 2022 og var þar í eitt og hálft ár áður en hann samdi í Danmörku.

FRÉTTIR30.09.2024, 09:52

Griezmann leggur landsliðsskóna á hilluna (Staðfest)

Franski framherjinn Antoine Griezmann hefur ákveðið að hætta að spila fyrir franska landsliðið, 33 ára gamall. Þessi leikmaður Atletico Madrid lék 137 landsleiki fyrir Frakkland og hjálpaði liðinu að vinna HM 2018.

FRÉTTIR28.09.2024, 12:22

Carl Jenkinson kominn aftur til Englands (Staðfest)

Enska félagið Bromley FC er búið að krækja í varnarmanninn leikreynda Carl Jenkinson, sem á 70 keppniseiki að baki fyrir meistaraflokk Arsenal og einn A-landsleik fyrir England.

FRÉTTIR27.09.2024, 13:37

Róbert Hauks í Fram (Staðfest)

Róbert Hauksson hefur yfirgefið Leikni og er genginn í raðir Fram í Bestu deildinni. Róbert, sem er fæddur árið 2001, hefur leikið með Leikni frá 2022 en í sumar spilaði hann 15 leiki í Lengjudeildinni og skoraði fimm mörk. Hann leikur yfirleitt á kantinum.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.