Liverpool til í að berjast við Man Utd um Branthwaite - Southgate líklegastur til að taka við af Ten Hag
banner
   mið 02. október 2024 11:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Úlfur áfram hjá Fjölni (Staðfest) - Gegnir lykilhlutverki í vegferðinni
Lengjudeildin
Næsta tímabil verður hans fjórða sem þjálfari Fjölnis.
Næsta tímabil verður hans fjórða sem þjálfari Fjölnis.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjölnir tilkynnti rétt í þessu að félagið hefði náð samkomulagi við Úlf Arnar Jökulsson um að hann verði áfram þjálfari liðsins. Nýr samningur gildir til tveggja ára.

Úlfur var á sínu þriðja tímabili með liðið í sumar og endaði Fjölnir í 3. sæti Lengjudeildarinnar eftir að hafa verið spáð talsvert verra gengi. Liðið var lengi vel í efsta sæti deildarinnar en tókst ekki að ná í úrslit í mörgum leikjum í röð þegar leið á tímabilið. Liðið fór í umspil um sæti í Bestu deildinni en féll úr leik í undanúrslitum fyrir Aftureldingu sem fór að lokum upp með ÍBV.

Úr tilkynningu Fjölnis
„Við hjá Fjölni erum ákaflega ánægð með að hafa endurnýjað samninginn við Úlf. Við höfum byggt upp ungt og skemmtilegt lið sem var nálægt því að vinna sig upp um deild. Við munum áfram leggja áherslu á að ungir knattspyrnumenn eigi greiðan aðgang að meistaraflokkshópi félagsins og að Fjölnir sé í fremstu röð í að búa til unga afreksleikmenn. Þetta er í samræmi við afreksstefnu okkar. Í þessari vegferð gegnir Úlfur lykilhlutverki," segir Björgvin Jón Bjarnason formaður knattspyrnudeildar Fjölnis í tilefni af framlengingu samningsins.

„Ég er bæði ánægður og stoltur að hafa endurnýjað samning minn sem þjálfari Fjölnis í meistaraflokki karla í knattspyrnu. Fjölnir er minn uppeldisklúbbur og ég á þar sterkar rætur. Mér finnst mikill heiður að vera treyst fyrir áframhaldandi þjálfun Fjölnis. Ég hlakka til að halda áfram að vinna með þessum frábæra hópi og byggja ofan á þann árangur sem náðist í sumar. Ég er fullur tilhlökkunar að takast á við komandi tímabil af krafti og eldmóði og trúi því að við getum gert enn betur. Áfram Fjölnir!“ sagði Úlfur við sama tækifæri.
Athugasemdir
banner
banner
banner