Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24407 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR27.08.2024, 12:36

Fabio Vieira aftur til Porto frá Arsenal (Staðfest)

Miðjumaðurinn Fabio Vieira er aftur genginn í raðir Porto frá Arsenal en hann kemur á láni frá enska félaginu. Porto dekkar launin hjá Vieira á meðan hann er á láni hjá félaginu en ekkert kaupákvæði er í samningnum.

FRÉTTIR27.08.2024, 10:14

Jón Dagur til Hertha Berlín (Staðfest)

Kantmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson hefur skrifað undir samning við þýska félagið Herthu Berlín. Hann gengur í raðir félagsins frá Leuven í Belgíu.

FRÉTTIR27.08.2024, 07:30

Patino seldur frá Arsenal til Deportivo (Staðfest)

<p>Charlie Patino er genginn til liðs við Deportivo La Coruna frá Arsenal. Spænska félagið greiðir eina milljón punda fyrir leikmanninn. Enska félagið mun fá hluta af söluverði ef hann yfirgefur Deportivo í framtíðinni.</p><p>Deportivo leikur í næst efstu deild á Spáni.</p>

FRÉTTIR27.08.2024, 06:00

Cuadrado til Atalanta (Staðfest)

<p>Juan Cuadrado hefur skrifað undir eins árs samning við Atalanta. Hann kemur á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Inter rann út í sumar.</p>

FRÉTTIR26.08.2024, 16:25

Hjörtur færir sig til í Seríu B (Staðfest)

Hjörtur Hermannsson er nýr leikmaður ítalska félagsins Carrarese. Frá þessu greinir félagið í dag en Hjörtur færir sig um set innan Ítalíu þar sem hann hefur leikið með Pisa undanfarin ár. Carrarese er líkt og Pisa í næstefstu deild Ítalíu, Seríu B.

FRÉTTIR26.08.2024, 15:04

Matt O'Riley til Brighton (Staðfest)

Brighton hefur keypt danska landsliðsmiðjumanninn Matt O'Riley frá Skotlandsmeisturum Celtic. Kaupverðið er meira en 25 milljónir punda. O'Riley er 23 ára og fæddist í London. Hann skoraði 27 mörk í 124 leikjum fyrir Celtic og vann sex titla með félaginu, þar á meðal þrjá Skotlandsmeistaratitla. Hann er dýrasti leikmaður sem seldur hefur verið frá Skotlnandi. <i>„Hann er góður bæði varnar- og sóknarlega. Hann er frábær karakter með mikinn metnað,"</i> segir Fabian Hurzeler, stjóri Brighton. Brighton fer vel af stað í ensku úrvalsdeildinni og hefur unnið bæði Everton og Manchester United.

FRÉTTIR26.08.2024, 14:55

James í Rayo Vallecano (Staðfest)

Hinn 33 ára gamli James Rodriguez er kominn aftur í spænska boltann og hefur gert eins árs samning við Rayo Vallecano. James yfirgaf Olympiakos í fyrra og hefur verið undanfarið ár hjá Sao Paulo í Brasilíu. Hann lék afskaplega vel fyrir kólumbíska landsliðið á Copa America í sumar en liðið tapaði í framlengdum úrslitaleik gegn Argentínu.

FRÉTTIR26.08.2024, 09:36

Lenglet lánaður til Atletico (Staðfest)

Atletico Madrid hefur fengið miðvörðinn Clement Lenglet lánaðan frá Barcelona út tímabilið. Ekki er neitt ákvæði um kaupmöguleika. Þessi 29 ára örvfætti franski leikmaður er að fara að spila í spænska boltanum í fyrsta sinn í þrjú ár. Aðdáendur enska boltans þekkja hann vel eftir að hann spilaði fyrir Aston Villa á láni á síðasta tímabili og hjá Tottenham þar á undan. Barcelona er með gott úrval varnarmanna og vildu létta á launagreiðslum félagsins þar sem Lenglet átti ekki að vera í stóru hlutverki undir stjórn Hansi Flick.

FRÉTTIR26.08.2024, 08:00

Frá Real Madrid til Como (Staðfest)

Como hefur staðfest kaupin á argentínska leikmanninum Nico Paz en hann kemur frá Evrópu- og Spánarmeisturum Real Madrid.

FRÉTTIR25.08.2024, 20:29

Nico Gonzalez til Juventus (Staðfest)

Argentínski landsliðsmaðurinn Nicolas Gonzalez er kominn til Juventus frá Fiorentina, en þetta kemur fram í tilkynningu frá Juventus í kvöld.

FRÉTTIR25.08.2024, 12:40

Brighton sendir Valentín Barco til Sevilla (Staðfest)

Búist var við að argentínski bakvörðurinn Valentín Barco yrði vinstri bakvörður Brighton á upphafi tímabils og kom það mörgum á óvart þegar Fabian Hürzeler þjálfari kaus að nota frekar Jack Hinshelwood.

FRÉTTIR25.08.2024, 11:40

Girona fær arftaka Savinho frá Watford (Staðfest)

Spænska félagið Girona, sem reyndist spútnik lið síðustu leiktíðar í La Liga, er búið að kaupa inn nýjan kantmann sem á að leysa hinn brasilíska Savinho af hólmi á tímabilinu.

FRÉTTIR25.08.2024, 11:13

O'Shea kominn til Ipswich (Staðfest)

Ipswich Town er búið að staðfesta kaup á írska landsliðsmanninum Dara O'Shea sem kemur til félagsins úr röðum Burnley.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.