Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
banner
   þri 27. ágúst 2024 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mike Penders í Chelsea (Staðfest) - Sama leið og Courtois
Mike Penders,
Mike Penders,
Mynd: Chelsea
Belgíski markvörðurinn Mike Penders er genginn í raðir Chelsea frá Genk.

Hann skrifar undir samning við Chelsea sem gildir til ársins 2032.

Kaupverðið er í kringum 20 milljónir evra fyrir þennan efnilega markvörð en hann er aðeins 19 ára gamall.

Hann mun koma til Chelsea næsta sumar þar sem hann verður á láni hjá Genk út þessa leiktíð. Hann hefur nú þegar spilað tvo aðalliðsleiki með Genk.

Penders hefur verið líkt við Thibaut Courtois en þeir komu báðir upp úr akademíu Genk og fóru svo til Chelsea.

Penders er enn einn ungi leikmaðurinn sem Chelsea kaupir í sumar en hann á að baki sjö leiki fyrir U19 landslið Belgíu.
Athugasemdir
banner
banner