Fotbolti.net
27.08.24 - 12:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Fabio Vieira aftur til Porto frá Arsenal (Staðfest)

Fabio Vieira.

Fabio Vieira.

Canon

Mynd: Porto

Miðjumaðurinn Fabio Vieira er aftur genginn í raðir Porto frá Arsenal en hann kemur á láni frá enska félaginu.

Porto dekkar launin hjá Vieira á meðan hann er á láni hjá félaginu en ekkert kaupákvæði er í samningnum.
Vieira, sem er 24 ára gamall, var keyptur til Arsenal frá Porto fyrir tveimur árum.

Arsenal greiddi tæpar 35 milljónir punda fyrir leikmanninn sem hefur spilað 33 leiki og skorað tvö mörk á tveimur árum sínum hjá félaginu.

Hann var ekki í leikmannahópi Arsenal í fyrstu tveimur umferðum ensku úrvalsdeildarinnar.

Arsenal er að landa Mikel Merino frá Real Sociedad og því er ekki lengur pláss fyrir Vieira hjá félaginu. Hann er þess vegna farinn aftur heim.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.