Fotbolti.net
27.08.24 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Cuadrado til Atalanta (Staðfest)

Cuadrado til Atalanta (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Juan Cuadrado hefur skrifað undir eins árs samning við Atalanta. Hann kemur á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Inter rann út í sumar.

Cuardardo er 36 ára kólumbískur landsliðsmaður en hann hefur spilað á Ítalíu lengst af á sínum ferli. Hann var á mála hjá Chelsea frá 2015-2017.

Hann hefur unnið ítölsku deildina sex sinnum. Fimm sinnum með Juventus og svo með Inter á síðustu leiktíð.

Það hefur verið nóg að gera hjá Atlanta í sumar en liðið hefur nælt í leikmenn á borð við Lazar Samardži?, Mateo Retegui, Ben Godfrey og þá festi félagið kaup á Charles De Ketelaere sem var á láni hjá félaginu frá AC Milan á síðustu leiktíð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.