Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24412 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR02.08.2024, 18:00

Nýliðar Ipswich kaupa vinstri bakvörð (Staðfest)

Ipswich hefur gengið frá kaupunum á vinstri bakverðinum Conor Townsend. Townsend, sem er 31 árs, kemur frá WBA og er sagt að úrvalsdeildarfélagið greiði 500 þúsund pund fyrir leikmanninn. Hann hitti nýju liðsfélaga sína í Þýskalandi í gær en þar er Ipswich í æfingaferð. Hann skrifar undir tveggja ára samning.

FRÉTTIR02.08.2024, 16:08

Sá markahæsti á Spáni er kominn til Roma (Staðfest)

Úkraínski sóknarmaðurinn Artem Dovbyk er kominn í Roma. Stuðningsmenn Roma fagna þessum tíðindum enda raðaði Dovbyk inn mörkum fyrir Girona á síðasta tímabili og endaði með gullskóinn í La Liga sem markahæsti maður spænsku deildarinnar. Ítalskir fjölmiðlar segja Rómverja kaupa Dovbyk á 30,5 milljónir evra og sú upphæð gæti hækkað um 5,5 milljónir evra í árangurstengdum greiðslum.

FRÉTTIR02.08.2024, 15:00

Sarr kynntur hjá Palace (Staðfest)

Crystal Palace hefur keypt vængmanninn Ismaila Sarr frá Marseille fyrir um 12,5 milljónir punda. Þessi 26 ára leikmaður skrifaði undir fimm ára samning. <i>„Ég vil þakka þjálfaranum og íþróttastjóranum. Þeir sögðu mér frá verkefninu og ég var hrifinn,"</i> sagði Sarr.

FRÉTTIR02.08.2024, 13:49

Fulham kaupir Smith Rowe á metupphæð (Staðfest)

Fulham hefur staðfest kaup sín á Emile Smith Rowe sem kemur frá Arsenal. Um metkaup er að ræða hjá Fulham en félagið hefur aldrei greitt hærri upphæð fyrir leikmann. Fulham staðgreiðir 27 milljónir punda og svo eru árangurstengdar greiðslur sem geta ýtt kaupverðinu upp í 34 milljónir punda.

FRÉTTIR02.08.2024, 11:36

Samningi Abdeen Abdul við Dalvík/Reyni rift (Staðfest)

Dalvík/Reynir tilkynnti í dag að félagið hefði gert samkomulag við framherjann Abdeen Abdul á riftun á samningi. Hann hefur því leikið sinn síðasta leik fyrir félagið. Alls lék hann níu leiki í Lengjudeildinni í sumar og skoraði fjögur mörk. Hans síðasti leikur var gegn Leikni í lok júní. Hann er 29 ára Íri sem var samningsbundinn D/R út tímabilið.

FRÉTTIR02.08.2024, 10:11

SPAL kaupir Óttar Magnús (Staðfest)

Ítalska C-deildarfélagið SPAL hefur keypt Óttar Magnús Karlsson frá Venezia. SPAL er í sömu deild og Vis Pesaro, liðið sem Óttar lék með á síðasta tímabili á láni frá Venezia. SPAL endaði um miðja C-deildina á síðasta tímabili og vonast til þess að Óttar hjálpi því að klífa ofar. Óttar Magnús er 27 ára sóknarmaður. Hann á að baki ellefu landsleiki og í þeim hefur hann skorað tvö mörk.

FRÉTTIR01.08.2024, 22:18

Arnar Grétarsson rekinn frá Val (Staðfest) - Túfa tekur við

Valur hefur rekið Arnar Grétarsson úr starfi. Srdjan Tufegdzic, alltaf kallaður Túfa, tekur við og hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Haukur Páll Sigurðsson verður aðstoðarmaður Túfa. Þetta eru ansi óvænt tíðindi en þau koma eftir að Valur tapaði gegn St. Mirren frá Skotlandi í forkeppni Sambandsdeildarinnar í kvöld.

FRÉTTIR01.08.2024, 17:30

Nani snýr heim (Staðfest)

Nani, fyrrum leikmaður Manchester United, hefur gengið í raðir portúgalska úrvalsdeildarfélagsins Estrela da Amadora á frjálsri sölu. Nani er 37 ára og hefur víða komið við á sínum ferli. Síðustu félagslið hans hafa verið Orlando City, Venezia, Melbourne Victory og Adana Demirspor. Hann lék 34 leiki með síðastnefnda liðinu á síðasta tímabili.

FRÉTTIR01.08.2024, 15:31

Sara Björk til Al Qadsiah í Sádi-Arabíu (Staðfest)

Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrrum landsliðsfyrirliði Íslands, hefur verið formlega kynnt hjá liði Al Qadsiah í Sád-Arabíu. Hún er kynnt sem stjarna sem muni skína skært fyrir félagið. Al Qadsiah endaði í fjórða sæti af átta liðum í efstu deild kvenna í Sádi-Arabíu en það hefur ekki farið framhjá neinum að engu hefur verið til sparað til að koma fótboltanum á kortið í landinu. Sara Björk var án félags eftir að samningur hennar við Juventus rann út í sumar. Sara er 33 ára og lék 145 landsleiki fyrir Ísland, og skoraði 24 mörk, á árunum 2007-2022.

FRÉTTIR01.08.2024, 12:52

Óskar Hrafn tekur við KR (Staðfest) - Kemur strax inn í teymið

KR tilkynnti rétt í þessu að Óskar Hrafn Þorvaldsson muni taka við sem þjálfari liðsins eftir tímabilið. Hann kemur hinsvegar strax inn í þjálfareymi liðsins og verður Pálma Rafni Pálmasyni til aðstoðar út yfirstandandi tímabil. Auk þess að þjálfa meistaraflokk karla hjá KR mun Óskar verða yfirmaður fótboltamála. Pálmi mun svo taka við sem framkvæmdastjóri félagsins eftir að yfirstandandi keppnistímabili lýkur. KR hefur gengið afleitlega á tímabilinu og er í níunda sæti Bestu deildarinnar, aðeins þremur stigum frá fallsæti.

FRÉTTIR01.08.2024, 10:36

Alfreð Finnbogason í starf hjá Breiðabliki (Staðfest) - Spilar áfram í Evrópu

Breiðablik tilkynnti í morgun að Alfreð Finnbogason væri orðinn starfsmaður félagsins; væri kominn í starf sem tæknilegur ráðgjafi knattspyrnudeildar hjá félaginu. <i>„Alfreð mun bera ábyrgð á knattspyrnulegum málefnum Breiðabliks, móta stefnu um hugmyndafræði félagsins á víðum grunni og bera ábyrgð á faglegu starfi deildarinnar ásamt starfsfólki knattspyrnudeildar,"</I> segir m.a. í tilkynningu félagsins. Alfreð er núverandi atvinnu- og landsliðsmaður. Hann á eitt ár eftir af samningi sínum við belgíska félagið Eupen og segir að hann muni sinna starfi sínu hjá Breiðabliki samhliða því að spila sem atvinnumaður í Evrópu. Framherjinn þekkir vel til hjá Breiðabliki því hann var hjá félaginu á árunum 2005-2010 og varð bæði Íslands- og bikarmeistari með liðinu.

FRÉTTIR01.08.2024, 10:28

Pavlovic til AC Milan (Staðfest)

AC Milan hefur fengið serbneska varnarmanninn Strahinja Pavlovic frá RB Salzburg. Hann skrifaði undir samning til 2028, með möguleika á einu ári til viðbótar. Þessi 23 ára miðvörður vakti athygli njósnara AC Milan með öflugu tímabili í austurrísku deildinni.

FRÉTTIR01.08.2024, 09:58

Pascal Gross í Dortmund (Staðfest)

Borussia Dortmund hefur gengið frá kaupum á hinum fjölhæfa Pascal Gross frá Brighton á Englandi. Talið er að kaupverðið sé í kringum 10 milljónir punda.

FRÉTTIR31.07.2024, 20:33

McClaren tekur við af Heimi (Staðfest)

<p>Steve McClaren hefur verið ráðinn þjálfari landsliðs Jamaíku og tekur hann því við starfinu af Heimi Hallgrímssyni. Hann gerir tveggja ára samning.</p>

FRÉTTIR31.07.2024, 18:32

Khalok aftur til Ólafsvíkur (Staðfest)

Víkingur Ólafsvík hefur samið við Abdelhadi Khalok um að klára tímabilið með félaginu. Ólsarar þekkja Khalok vel en þessi 27 ára kantmaður spilaði með liðinu í fyrra og skoraði samtals 9 mörk í 18 leikjum í öllum keppnum. Fyrri hluta tímabilsins í ár lék hann með KFA en skiptir nú yfir og klárar tímabilið með Víkingum. <i>„Við bjóðum Khalok velkominn aftur til Ólafsvíkur,"</i> segir í tilkynningu frá Víkingi Ólafsvík en í gær tilkynnti félagið um endurkomu spænska miðjumannsins Simon Colina.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.