Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24414 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR31.07.2024, 20:33

McClaren tekur við af Heimi (Staðfest)

<p>Steve McClaren hefur verið ráðinn þjálfari landsliðs Jamaíku og tekur hann því við starfinu af Heimi Hallgrímssyni. Hann gerir tveggja ára samning.</p>

FRÉTTIR31.07.2024, 18:32

Khalok aftur til Ólafsvíkur (Staðfest)

Víkingur Ólafsvík hefur samið við Abdelhadi Khalok um að klára tímabilið með félaginu. Ólsarar þekkja Khalok vel en þessi 27 ára kantmaður spilaði með liðinu í fyrra og skoraði samtals 9 mörk í 18 leikjum í öllum keppnum. Fyrri hluta tímabilsins í ár lék hann með KFA en skiptir nú yfir og klárar tímabilið með Víkingum. <i>„Við bjóðum Khalok velkominn aftur til Ólafsvíkur,"</i> segir í tilkynningu frá Víkingi Ólafsvík en í gær tilkynnti félagið um endurkomu spænska miðjumannsins Simon Colina.

FRÉTTIR31.07.2024, 12:11

Charlie Austin mættur aftur í utandeildina (Staðfest)

Enski framherjinn Charlie Austin er mættur aftur í ensku utandeildina eftir fimmtán ára fjarveru. Hann hefur samið við AFC Totton en síðast var hann í utandeildinni tímabilið 2008-2009 þegar hann raðaði inn mörkum fyrir Poole Town og var í kjölfarið keyptur til Swindon. Þaðan lá leiðin Burnley, svo QPR, Southampton og loks WBA áður en hann hélt aftur til QPR. Hann var síðustu tvö tímabil hjá Swindon í D-deildinni en er mættur aftur í utandeildina - mun spila í Southern League: Premier South. Austin er 35 ára framherji sem skoraði átján mörk í úrvalsdeildinni tímabilið 2014-15 með QPR en þau dugðu þó ekki til að halda liðinu uppi.

FRÉTTIR31.07.2024, 10:24

Djenairo Daniels í Fram (Staðfest) - Má spila í kvöld

Hollenski sóknarmaðurinn Djenairo Daniels er kominn með leikheimild með Fram og er því löglegur fyrir leik liðsins gegn Fylki í Bestu deildinni sem fram fer í kvöld. Daniels er 22 ára sóknarmaður sem getur leyst það að spila á báðum köntunum og fremst á vellinum. Hann er frekar hávaxinn eða 190 sm á hæð

FRÉTTIR31.07.2024, 06:00

Matias Soule til Roma (Staðfest)

Argentínski miðjumaðurinn Matias Soule var í gær kynntur sem nýr leikmaður Roma á Ítalíu, en hann kemur frá Juventus fyrir 30 milljónir evra.

FRÉTTIR30.07.2024, 22:47

Frá Man Utd til PAOK (Staðfest)

PAOK hefur fengið Englendinginn unga Shola Shoretire á frjálsri sölu en hann var síðast á mála hjá Manchester United.

FRÉTTIR30.07.2024, 19:36

HK fær danskan markvörð (Staðfest)

Danski markvörðurinn Christoffer Petersen hefur skrifað undir samning við HK sem gildir út tímabilið en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.

FRÉTTIR30.07.2024, 17:30

Sindri endurheimtir Bjarka Flóvent (Staðfest)

Bjarki Flóvent Ásgeirsson skrifaði undir samning nú á dögunum við Sindra og spilar með liðinu út þetta tímabil. Bjarki Flóvent kom fyrst til Sindra árið 2021 en færði sig yfir í Knattspyrnufélag Garðabæjar fyrir tímabilið 2024. Hann spilaði fimm leiki með KFG í 2. deild í sumar, en hann lék einnig með liðinu í Fótbolti.net bikarnum og í Mjólkurbikarnum.

FRÉTTIR30.07.2024, 14:26

Geoffrey Castillion í Ægi (Staðfest)

Ægir hefur fengið hollenska sóknarmanninn Geoffrey Castillion í sínar raðir og mun hann spila með liðinu út tímabilið. Castillion, sem heitir fullu nafni Geoffrey Wynton Mandelano Castillion, þekkir vel til á Íslandi því hann lék í efstu deild á árunum 2017-19. Hann lék með Víkingi í eitt tímabil, fór svo til FH fyrir tímabilið 2018 en fór aftur í Víking í glugganum um mitt tímabil. Hann endaði svo á því að spila með Fylki tímabilið 2019. Í 53 leikjum fyrir liðin þrjú i efstu deild skoraði hann 28 mörk.

FRÉTTIR30.07.2024, 14:04

Brereton Díaz til Southampton (Staðfest)

Southampton hefur gengið frá kaupum á framherjanum Ben Brereton Díaz frá Villarreal fyrir um 7 milljónir punda. Þessi landsliðsmaður Síle fór á frjálsri sölu til Villarreal frá Blackburn fyrir ári síðan en tókst ekki að skora í þeim tuttugu leikjum sem hann spilaði á Spáni. Brereton Díaz var seinni hluta síðasta tímabils á láni hjá Sheffield United og skorað isex mörk í fjórtán úrvalsdeildarleikjum. Southampton hefur verið í framherjaleit eftir að Che Adams ákvað að ganga í raðir Torino í þessum mánuði, eftir að hafa hafnað boði Southampton um nýjan samning. Brereton Díaz lék fyrir yngri landslið Englands en ákvað svo að spila fyrir Síle. Þessi 25 ára leikmaður spilaði fyrir Síle á Copa America. Áður hafði Southampton krækt í Adam Lallana, Taylor Harwood-Bellis, Charlie Taylor, Ronnie Edwards, Nathan Wood, Yukinari Sugawara og Flynn Downes í þessum glugga. Liðið er komið aftur upp í úrvalsdeildina eftir að hafa unnið umspil Championship-deildarinnar á síðasta tímabili.

FRÉTTIR30.07.2024, 12:42

KR selur Aron Kristófer heim í Þór (Staðfest)

Aron Kristófer Lárusson er að ganga í raðir uppeldisfélags síns, Þórs. Þetta kom fyrst fram í útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardag en Kristján Óli Sigurðsson, sérfræðingur <i>Þungavigtarinnar</I>, sagði svo frá því í gær að Aron Kristófer væri að skrifa undir þriggja ára samning í Þorpinu. Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar KR, staðfestir þá við Fótbolta.net að Vesturbæjarstórveldið sé að selja vinstri bakvörðinn.

FRÉTTIR30.07.2024, 10:25

Selma Sól mætt aftur í Rosenborg (Staðfest)

Selma Sól Magnúsdóttir er mætt aftur til norska félagsins Rosenborg og skrifar hún undir samning sem gildir út tímabilið 2026. Hún fór frá Rosenborg eftir tímabilið 2023 og gekk í raðir Nürnberg í Þýskalandi þar sem hún var fyrri hluta árs. Selma er í nokkuð stóru hlutverki með landsliðinu, hún á að baki 41 leik og hefur í þeim skorað fjögur mörk.

FRÉTTIR30.07.2024, 10:13

Unnar Steinn í Þrótt R. (Staðfest)

Unnar Steinn Ingvarsson er genginn í raðir Þróttar Reykjavíkur frá Fylki og er kominn með leikheimild fyrir leikinn gegn Fjölni sem fram fer annað kvöld. Unnar Steinn er í grunninn miðjumaður sem hefur einnig leyst stöðu bakvarðar hjá Fylki.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.