Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24418 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR19.07.2024, 17:04

Stefán Ingi til Sandefjord (Staðfest)

Stefán Ingi Sigurðarson er genginn í raðir norska félagsins Sandefjord og skrifar hann undir samning sem gildir út árið 2027. Sandefjord kaupir hann frá belgíska félaginu Patro Eisden þar sem Stefán var í eitt ár. Stefán skoraði átta mörk í belgísku B-deildinni í fyrra og tvö í bikarnum. Stefán segir á heimasíðu Sandefjord að leikstill liðsins og hugmyndafræði hljómi mjög vel. Liðið leggur upp með hápressu og að halda vel í boltann. Sandefjord er í brasi í norsku deildinni, liðið er á botninum og á Stefán að hjálpa liðinu að vinna sig úr þeirri erfiðu stöðu.

FRÉTTIR19.07.2024, 17:00

Emir Dokara snýr aftur í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Varnarmaðurinn Emir Dokara er kominn í Víking Ólafsvík að nýju en hann lék með liðinu við góðan orðstír frá 2011-2020. Hann á þrjú tímabil með liðinu í efstu deild; 2013, 2016 og 2017.

FRÉTTIR19.07.2024, 16:21

Jökull í Aftureldingu (Staðfest) - „Ótrúlega spenntur"

Afturelding staðfesti rétt í þessu að Jökull Andrésson væri ggenginn til liðs við félagið. Jökull, sem uppalinn er hjá Aftureldingu, snýr aftur í Msofellsbæinn eftir átta ár hjá Reading. Hann lék síðast með Aftureldingu sumarið 2016, lék þá mð 3. flokki. Hann kemur á láni frá enska félaginu, en hann er samningsbundinn Reading fram á næsta sumar. Birkir Haraldsson, sem varið hefur mark Aftureldingar í síðustu tveimur leikjum, er á leið í nám í Bandaríkjunum í lok mánaðar og því var markvörður sóttur í staðinn.

FRÉTTIR19.07.2024, 15:45

Willum til Birmingham (Staðfest) - Metupphæð í deildinni

Willum Þór Willumsson var rétt í þessu kynntur sem nýr leikmaður enska félagsims Birmingham City. Birmingham kaupir hann frá hollenska félaginu Go Ahead Eagles þar sem Willum hefur verið síðustu tvö ár. Birmingham greiðir rúmlega 600 milljónir íslenskra króna fyrir Willum eða um fjórar milljónir evra og skrifar íslenski landsliðsmaðurinn undir fjögurra ára samning við félagið. Samkvæmt <i>Transfermarkt</I> er Will Grigg dýrasti leikmaður sem félag í League One hefur keypt. Sunderland greiddi 3,4 milljónir evra fyrir framherjann sem kom frá Wigan í janúar 2019. Ef þessar upplýsingar eru réttar þá er Willum orðinn dýrasti leikmaður sem félag í C-deildinni hefur keypt. Þetta gerir hann líka að dýrustu sölu í sögu í hollenska félagsins.

FRÉTTIR19.07.2024, 15:27

Orri Steinn framlengir við FCK (Staðfest)

Danska félagið FCK og Orri Steinn Óskarsson hafa náð samkomulagi um framlengingu á samningi framherjans við félagið. Orri er nú samningsbundinn fram á sumarið 2028. Orri er 19 ára landsiðsmaður sem spilaði mjög vel í úrslitakeppninni í vor eftir að kallið kom frá þjálfara liðsins. Þar á undan hafði hann verið úti í kuldanum og þurfti að hafa fyrir því að vinna sig aftur í liðið.

FRÉTTIR19.07.2024, 13:30

Þróttur endurheimtir Elísabetu og fær Melissu í sínar raðir (Staðfest)

Tveir leikmenn hafa fengið leikheimild með liði Þróttar fyrir leikinn gegn FH í Bestu deild kvenna. Önnur þeirra þekkir vel til í Laugardalnum því Elísabet Freyja Þorvaldsdóttir (2001) er mætt aftur eftir að hafa leikið í spænsku B-deildinni fyrri hluta árs. Varnarmaðurinn Elísabet er uppalin hjá HK en skipti yfir í Þrótt fyrir tímabilið 2019. <a href="https://www.mbl.is/sport/efstadeild/2024/07/17/fra_spani_i_laugardalinn/" target="_blank"><i>Mbl.is</I></a> fjallaði um félagaskipti Elísabetar fyrr í vikunni. Hún lék með Europa á Spáni en félagið er í Barcelona þar sem Elísabet hefur verið í skóla.

FRÉTTIR19.07.2024, 12:07

Adam framlengir við Val og fer á láni til Ítalíu (Staðfest)

Valur tillkynnti í dag að Adam Ægir Pálsson hefðu náð samkomulagi um framlengingu á samningi hans við félagið. Á sama tíma var tilkynnt að Adam færi á láni til Perugia á Ítalíu og verður Perugia með forkaupsrétt á leikmanninum. Eins og Fótbolti.net greindi frá í gær þá er Adam þegar mættur til Ítalíu og byrjaður að æfa með Perugia. Ítalska liðið er að undirbúa sig fyrir tímabil í ítölsku C-deildinni.

FRÉTTIR19.07.2024, 11:30

Alvaro Morata í AC Milan (Staðfest)

Spænski landsliðsfyrirliðinn Alvaro Morata er genginn í raðir ítalska stórliðsins AC Milan. Milan virkjaði riftunarákvæði í samningi hans hjá Atletico Madrid upp á 10,9 milljónir punda.

FRÉTTIR19.07.2024, 10:05

Philogene aftur til Aston Villa (Staðfest)

Aston Villa hefur fengið U21 landsliðsmanninn enska Jaden Philogene aftur frá Hull, innan við tólf mánuðum eftir að hafa selt hann. Philogene hefur skrifað undir fimm ára samning við Villa sem jafnaði 18 milljóna punda tilboð sem Ipswich hafði gert í hann.

FRÉTTIR19.07.2024, 09:30

Hjulmand hættur með danska landsliðið (Staðfest)

Danmörk er í leit að nýjum landsliðsþjálfara en Kasper Hjulmand er hættur með liðið eftir fjögurra ára starf. Hans síðasti leikur við stjórnvölinn var tapið gegn Þýskalandi í 16-liða úrslitum EM. Hjulmand er 52 ára og er fyrrum stjóri Nordsjælland, Mainz og Lyngby. Hann tók við danska landsliðinu af Age Hareide árið 2020.

FRÉTTIR19.07.2024, 06:00

Martin Terrier til Bayer Leverkusen (Staðfest)

Þýskalandsmeistarar Bayer Leverkusen gerðu þriðju kaup sín á markaðnum í sumar í gær en franski sóknarmaðurinn Martin Terrier er kominn til félagsins frá Rennes í Frakklandi.

FRÉTTIR19.07.2024, 06:00

Kasper Schmeichel til Celtic (Staðfest)

Danski landsliðsmarkvörðurinn Kasper Schmeichel er mættur til skoska meistaraliðsins Celtic en hann kemur frá Anderlecht í Belgíu.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.