Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24418 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR12.07.2024, 19:38

Jacob Greaves til Ipswich (Staðfest)

Ipswich Town er búið að krækja sér í miðvörðinn Jacob Greaves sem kemur úr röðum Hull City fyrir um 18 milljónir punda.

FRÉTTIR12.07.2024, 16:25

Renato Veiga í Chelsea (Staðfest)

Chelsea hefur gengið frá kaupum á Renato Veiga frá Basel í Sviss. Kaupverðið er um 14 milljónir punda. Basel fær þá líka hluta af næstu sölu.

FRÉTTIR12.07.2024, 12:02

Darko mættur aftur í KA sjö árum seinna (Staðfest) - Tortímanda tilkynning

KA var rétt í þessu að tilkynna um komu vinstri bakvarðarins Darko Bulatovic. Hann er að mæta aftur til félagsins eftir langa fjarveru. Darko, sem fæddur er árið 1989, er Svartfellingur sem lék með KA tímabilið 2017 og þótti standa sig vel. Hann skoraði eitt mark í átján leikjum það tímabilið og lagði upp tvö mörk. Vinstri bakvörður KA, Birgir Baldvinsson, er á leið í háskólanám um næstu mánaðarmót og mun Darko fylla hans skarð. Darko á að baki þrjá leiki fyrir A-landslið Svartfellinga. Hann var síðast í hópnum í október 2020. Á ferlinum hefur hann leikið í heimalandinu, Póllandi, Serbíu, Albaníu og í Kasakstan. Síðast lék hann með FK Sutjeska Niksic í efstu deild Svartfjallalands en þar á undan lék hann með Vllaznia í Albaníu sem mætti einmitt Val í forkeppni Sambandsdeildarinnar í gær. Áhugavert kynningarmyndband KA má sjá hér að neðan.

FRÉTTIR11.07.2024, 17:35

Ægir Jarl til AB (Staðfest)

KR opinberaði rétt í þessu að Ægir Jarl Jónasson væri búinn að skrifa undir samning við AB í Danmörku og væri því búinn að kveðja KR. Ægir skrifar undir tveggja ára samning við Kaupmannahafnarfélagið. Ægir var á sínu sjötta tímabili hjá KR, kom frá uppeldisfélaginu Fjölni fyrir tímabilið 2019. Hann varð Íslandsmeistari með liðinu á sínu fyrsta tímabili. Alls skoraði hann 35 mörk í 167 leikjum fyrir KR. Ægir er 26 ára miðjumaður sem lék á sínum tíma 15 leiki fyrir yngri landsliðin. Hann verður í treyju númer 14 hjá AB.

FRÉTTIR11.07.2024, 15:19

Bergþóra Sól í Víking (Staðfest)

Víkingur tilkynnti rétt í þessu þau tíðindi sem Fótbolti.net greindi frá fyrr í dag: að Bergþóra Sól Ásmundsdóttir væri gengin í raðir félagsins. Bergþóra skrifar undir samning sem gildir út næsta tímabil en hún kemur frá sænska félaginu Örebro.

FRÉTTIR11.07.2024, 13:00

Okoli til Leicester (Staðfest) - Kemur Soule líka?

Leicester hefur gengið frá kaupum á Caleb Okoli, varnarmanni Atalanta. Þessi 22 ára miðvörður var á láni hjá Frosinone á síðasta tímabili en liðið féll úr ítölsku A-deildinni. <i>„Ég tel að þetta sé rétta stundin til að taka öðruvísi skref og það mjög stórt. Enska úrvalsdeildin er sú besta í heimi,"</i> segir Okoli en Leicester vann Championship-deildina á síðasta tímabili.

FRÉTTIR11.07.2024, 09:19

Palhinha loksins orðinn leikmaður Bayern (Staðfest)

Bayern München hefur loksins tryggt sér portúgalska miðjumanninn Joao Palhinha frá Fulham en hann hefur skrifað undir fjögurra ára samning, til júní 2028. Þessi 28 ára leikmaður var á barmi þess að fara til Bayern fyrir ári síðan en það datt uppfyrir á síðustu stundu. Palhinha er keyptur á 42,3 milljónir punda en upphæðin gæti hækkað um 4,2 milljónir eftir ákvæðum. <i>„Þetta er einn mesti gleðidagur lífs míns. Ég er kominn í eitt stærsta félag Evrópu og er gríðarlega stoltur af því,"</i> segir Palhinha sem kom til Fulham frá Sporting Lissabon árið 2022 fyrir um 17 milljónir punda. Miðjumaðurinn lék 79 leiki yfir tvö tímabil með Fulham og skoraði átta mörk. Palhinha fylgir Michael Olise sem fór til Bayern frá Crystal Palace og þá er enski varnarmaðurinn Eric Dier formlega genginn í raðir félagsins eftir að hafa verið í láni frá Tottenham á síðasta tímabili. Bayern hafði orðið Þýskalandsmeistari ellefu ár í röð áður en Bayer Leverkusen batt enda á þá sigurgöngu á síðasta tímabili.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.