Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25143 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR04.07.2024, 10:12

Ten Hag búinn að skrifa undir nýjan samning til 2026 (Staðfest)

Hollendingurinn Erik ten Hag hefur skrifað undir nýjan samning við Manchester United til 2026. Fyrrum samningur hans, sem hann undirritaði þegar hann tók við liðinu 2022, átti að renna út á næsta ári. Undir stjórn Ten Hag hefur Manchester United unnið tvo bikara á tveimur árum.

FRÉTTIR03.07.2024, 19:30

Piotr Zielinski til Inter (Staðfest)

Pólski miðjumaðurinn er genginn til liðs við Inter frá Napoli en deildin hefur tekið á móti gögnum þess efnis og staðfest skiptin.

FRÉTTIR03.07.2024, 19:00

Frá Chelsea til Real Madrid (Staðfest)

Þýska landsliðskonan Melanie Leupolz hefur yfirgefið Chelsea og samið við spænska félagið Real Madrid. Þetta kemur fram í yfirlýsingu Chelsea í dag.

FRÉTTIR03.07.2024, 18:00

Birkir Jakob áfram á Ítalíu (Staðfest)

Birkir Jakob Jónsson er búinn að endurnýja samninginn sinn við Atalanta, hann er nú samninsbundinn ítalska félaginu fram á sumarið 2026. Þetta hefur legið fyrir í talsverðan tíma en er loksins orðið staðfest. Hann var orðaður við heimkomu til Íslands í vetur en ákveður að vera áfram á Ítalíu.

FRÉTTIR03.07.2024, 11:29

Iliman Ndiaye í Everton (Staðfest)

Senegalski landsliðsmaðurinn Iliman Ndiaye er genginn í raðir Everton og hefur skrifað undir fimm ára samning við félagið. Everton kaupir Ndiaye frá Marseille í Frakklandi fyrir allt að 20 milljónir evra.

FRÉTTIR02.07.2024, 21:23

Hlynur Freyr til Brommapojkarna (Staðfest)

<p>Hlynur Freyr Karlsson hefur skrifað undir samning við sænska félagið Brommapojkarna. Hann kemur til liðsins frá norska liðinu Haugesund.</p>

FRÉTTIR02.07.2024, 14:06

Kiernan Dewsbury-Hall í Chelsea (Staðfest)

Miðjumaðurinn Kiernan Dewsbury-Hall er orðinn leikmaður Chelsea en þetta var staðfest núna rétt í þessu. Kaupverðið er um 30 milljónir punda.

FRÉTTIR02.07.2024, 13:47

Norskur landsliðsframherji til Wolves (Staðfest)

Norski framherjinn Jörgen Strand Larsen er genginn í raðir Wolves. Hann kemur á árs láni frá Celta Vigo út komandi tímabil og þarf Wolves að kaupa hann ef Strand Larsen uppfyllir ákveðin skilyrði á næstu tólf mánuðum. Strand Larsen er 24 ára og var einnig orðaður við Roma, Aston Villa og West Ham. Hann kláraði læknisskoðun í gær. Samingur hans við enska félagið mun gilda til 2029 ef hann verur keyptur.

FRÉTTIR02.07.2024, 13:30

Olgeir hættur hjá Fylki (Staðfest)

Fótboltadeild Fylkis tilkynnti rétt í þessu að hún hefði gert samkomulag um starfslok við Olgeir Sigurgeirsson. Olgeir hefur verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla og þjálfari í afreksstarfi félagsins. Hann var aðstoðarmaður Rúnars Páls Sigmundssonar.

FRÉTTIR02.07.2024, 10:17

Archie Gray til Tottenham (Staðfest) - „Allir hjá Leeds miður sín“

Tottenham hefur gengið frá kaupum á Archie Gray frá Leeds. Þessi átján ára leikmaður eignaðist marga aðdáendur eftir frábært tímabil með Leeds í Championship-deildinni. Brentford reyndi að fá hann en tókst ekki. Þessi U21 landsliðsmaður Englands hefur skrifað undir sex ára samning við Tottenham sem borgar um 25-30 milljónir punda fyrir hann. Joe Rodon gengur í raðir Leeds sem hluti af samkomulaginu en velski varnarmaðurinn var á láni hjá Leeds síðasta tímabil.

FRÉTTIR02.07.2024, 06:00

Mary Earps til PSG (Staðfest)

Enski landsliðsmarkvörðurinn Mary Earps er gengin til liðs við PSG á frjálsri sölu eftir að samningur hennar við Man Utd rann út í sumar.

FRÉTTIR01.07.2024, 17:30

Lyon klárar kaupin á Benrahma (Staðfest)

Lyon hefur tilkynnt að félagið nýtti sér kaupmöguleika í lánssamningi Said Benrahma. Hann var á láni hjá félaginu frá West Ham seinni hluta síðasta tímabils og skoraði þrjú mörk í fimmtán leikjum. Benrahma var í fjögur ár hjá West Ham en hann var keyptur frá Brentford sumarið 2020. Hann skoraði 24 mörk í 155 leikjum fyrir Hamrana.

FRÉTTIR01.07.2024, 16:41

Andri Fannar hjá Elfsborg út tímabilið (Staðfest)

<i>Expressen</I> í Svíþjóð fjallar um það í dag að Elfsborg og Bologna hafi náð samkomulagi um það að Andri Fannar Baldursson verði áfram á láni hjá sænska félaginu og klári því tímabilið í Svíþjóð. Fótbolti.net hefur fengið tíðindin staðfest, Andri verður hjá Elfsborg út árið. Það hefur verð talsverð óvissa í kringum framtíð Andra Fannars að undanförnu en samkomulag virðist í höfn. Nýr lánssamningur er sagður gilda út tímabilið 2024 í Allsvenskan.

FRÉTTIR01.07.2024, 16:26

Marc Guei til Chelsea (Staðfest) - Missti úr svefn vegna spennu

Chelsea hefur staðfest kaup á spænska framherjanum Marc Guiu en hann kemur frá Barcelona. Hann er 18 ára og skrifar undir fimm ára samning á Stamford Bridge, með möguleika á árs framleningu. Guiu kom við sögu í sex leikjum með aðalliði Barcelona í fyrra og skoraði sitt fyrsta mark gegn Antwerp í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.