Enski landsliðsmarkvörðurinn Mary Earps er gengin til liðs við PSG á frjálsri sölu eftir að samningur hennar við Man Utd rann út í sumar.
Earps hefur verið einn besti markvörður í heimi undanfarin ár en hún var valin besti markvörður heims 2022 og 2023. Hún var aðalmarkvörður enska landsliðsisn þegar liðið vann EM 2022.
Hún gerir þriggja ára samning við franska liðið.
„Þetta er frábært tækifæri og mikill heiður og ég get ekki beðið eftir því að byrja að spila með nýju liðsfélögunum. Við munum í sameiningu gefa allt í þetta til að hjálpa félaginu að skína og gera stuðningsmennina stolta," sagði Earps við undirskriftina.
Athugasemdir