Fotbolti.net
02.07.24 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Harwood-Bellis til Southampton (Staðfest)

Harwood-Bellis til Southampton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Taylor Harwood-Bellis er genginn til liðs við Southampton frá Man City en félagið borgar 20 milljónir punda fyrir hann.

Þessi 22 ára gamli varnarmaður var á láni hjá félaginu á síðustu leiktíð en hann hefur nú skrifað undir fjögurra ára samning.

Southampton vann sér sæti í úrvalsdeildinni fyrir næstu leiktíð en það var ákvæði í samningi Harwood-Bellis að liðið skyldi kaupa hann ef af því verður.

Man City er með forkaupsrétt á honum og fær einnig prósentu af næstu sölu.

„Það er ekkert leyndarmál hversu mikið ég naut þess að vera hérna á síðustu leiktíð svo ég er í skýjunum að vera loksins orðinn leikmaður Southampton," sagði Harwood-Bellis.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.