Fotbolti.net
02.07.24 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sanchez, Cuadrado og Klaassen yfirgefa Inter (Staðfest)

Sanchez, Cuadrado og Klaassen yfirgefa Inter (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Davy Klaassen, Alexis Sanchez og Juan Cuadrado hafa allir yfirgefið Inter eftir að samningar þeirra runnu út um mánaðarmótin.

Hinn 35 ára gamli Sanchez hefur verið hjá Inter frá 2019 þegar hann gekk fyrst til liðs við félagið frá Man Utd á láni. Hann spilaði með  Marseille tímabilið 2022-2023 áður en hann snéri aftur til Inter fyrir síðasta tímabil. Hann skoraði 24 mörk í 142 leikjum fyrir félagið.

Klaassen, 31, gekk til liðs við Inter frá Ajax fyrir síðustu leiktíð en hann lék aðeins 18 leiki.

Cuadrado gekk einnig til liðs við félagið fyrir síðustu leiktíð en hann kom frá Juventus. Þessi 36 ára gamli leikmaður kom aðeins við sögu í 12 leikjum á tímabilinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.