Fotbolti.net
02.07.24 - 21:23
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Hlynur Freyr til Brommapojkarna (Staðfest)

Hlynur Freyr til Brommapojkarna (Staðfest)
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Hlynur Freyr Karlsson hefur skrifað undir samning við sænska félagið Brommapojkarna. Hann kemur til liðsins frá norska liðinu Haugesund.

Þessi tvítugi varnarmaður gekk til liðs við Haugesund í vetur frá Val en fékk takmarkaðan spiltíma. Hann gerir þriggja ára samning.

Brommapojkarna leikur í efstu deild í Svíþjóð en liðið er í 11. sæti eftir tólf umferðir.

Hann var valinn í A-landsliðið fyrir vináttuleikina í síðasta mánuði en þurfti að draga sig úr hópnum vegna meiðsla. Hann er fyrrum fyrirliði U19 landsliðsins og var lykilmaður í U21 landsliðinu á síðasta ári.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.