Fotbolti.net
03.07.24 - 19:30
Brynjar Ingi Erluson

Piotr Zielinski til Inter (Staðfest)

Piotr Zielinski er farinn til Inter

Piotr Zielinski er farinn til Inter

Canon

Mynd: EPA

Pólski miðjumaðurinn er genginn til liðs við Inter frá Napoli en deildin hefur tekið á móti gögnum þess efnis og staðfest skiptin.
Zielinski hefur verið einn af bestu mönnum Napoli síðustu ár og spilaði stóra rullu er liðið varð deildarmeistari á síðasta ári.

Samningur hans hjá Napoli rann sitt skeið á dögunum en hann hafði þegar kvatt félagið og var ljóst að hann myndi reyna fyrir sér hjá öðru félagi.

Inter hefur nú skilað gögnum inn til deildarinnar og er samningur hans við félagið nú staðfestur. Hann er því nýr leikmaður félagsins en Inter gekk einnig frá hinum unga og efnilega Luka Topalovic frá Domzale í Slóveníu.

Topalovic er 18 ára gamall og var á lista hjá Guardian yfir efnilegustu leikmenn heims sem fæddir eru árið 2006.

Inter er nú að vinna að því að ganga frá samningamálum við íranska landsliðsmanninn Mehdi Taremi en hann er á leið til félagsins frá Porto í Portúgal.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.