Lyon hefur tilkynnt að félagið nýtti sér kaupmöguleika í lánssamningi Said Benrahma. Hann var á láni hjá félaginu frá West Ham seinni hluta síðasta tímabils og skoraði þrjú mörk í fimmtán leikjum.
Benrahma var í fjögur ár hjá West Ham en hann var keyptur frá Brentford sumarið 2020. Hann skoraði 24 mörk í 155 leikjum fyrir Hamrana.
Benrahma var í fjögur ár hjá West Ham en hann var keyptur frá Brentford sumarið 2020. Hann skoraði 24 mörk í 155 leikjum fyrir Hamrana.
Lyon greiddi fimm milljónir punda fyrir lánssamninginn í vetur og kaupir hann núna á rúmega tólf milljónir punda.
Hann er 28 ára og landsliðsmaður Alsír. Hann getur gæði spilað á vinstri kantinum og í holunni fyrir aftan fremsta mann. Hann kannast vel við sig í Frakklandi því hann var í átta ár í Frakklandi áður en Brentford keypti hann sumarið 2018.
Benrahma ???????????? pic.twitter.com/QxBs2zwqI0
— Olympique Lyonnais ???????????????? (@OL_English) July 1, 2024
Athugasemdir