Fotbolti.net
01.07.24 - 16:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jói útherji

Marc Guei til Chelsea (Staðfest) - Missti úr svefn vegna spennu

Marc Guei til Chelsea (Staðfest) - Missti úr svefn vegna spennu
Canon

Mynd: Chelsea

Chelsea hefur staðfest kaup á spænska framherjanum Marc Guiu en hann kemur frá Barcelona. Hann er 18 ára og skrifar undir fimm ára samning á Stamford Bridge, með möguleika á árs framleningu.

Guiu kom við sögu í sex leikjum með aðalliði Barcelona í fyrra og skoraði sitt fyrsta mark gegn Antwerp í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
„Mér líður rosalega vel að vera búinn að skrifa undir hjá Chelsea og ég átti erfitt með svefn fyrir ferðina hingað því ég var svo spenntur."

„Frá því að ég var lítill hefur mig alltaf dreymt um að spila í úrvalsdeildinni. Núna fæ ég það tækifæir hér hjá Chelsea og ég vil leggja eins hart að mér og ég get svo mér gangi vel hjá félaginu,"
sagði Guiu.

Chelsea greiðir sex milljónir evra fyrir Guiu sem var riftunarverðið í samningi hans við Barcelona. Einhverjar sögur voru um mögulegt lán til Sevilla en það er víst ekki í plönunum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.